Viðskiptavinir

Landsvirkjun selur rafmagn til stóriðjunotenda og sölufyrirtækja á almennum markaði. Meðal viðskiptavina okkar eru orkufyrirtæki landsins sem og stóriðjunotendur. Samningar við stóriðjunotendur eru að jafnaði langtímasamningar sem byggjast á löngu undirbúningsferli.

Á almennum markaði býður Landsvirkjun ýmsar tegundir samninga til þeirra kaupenda sem sem selja rafmagn til endanotenda.

Algengustu samningar Landsvirkjunar á almennum markaði eru svokallaðir heildsölusamningar. Um er að ræða samninga til mismunandi langs tíma, frá einu ári til þriggja ára. Samningar þessir byggja á föstum einingaverðum út samningstímann, bæði fyrir orku og afl en einingaverð í heildsölusamingum til lengri tíma eru verðtryggð.

Auk heildsölusamninga býður Landsvirkjun kaupendum rafmagn í formi svokallaðra grunnorkusamninga og samninga til skemmri tíma en eins árs, jafnvel allt niður í eina klukkustund. Rafmagnsverð kaupenda ræðst mjög af þeirri samsetningu samninga sem kaupandi semur um við Landsvirkjun.

Til samanburðar er að finna hér á vefnum gildandi verðskrá fyrir heildsölusamninga Landsvirkjunar.

Sölu- og markaðsdeild Landsvirkjunar veitir allar frekari upplýsingar um sölu á rafmagni á almennum markaði í síma 515 9252.


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica