Markaðsvefur
Markaðsvefur Landsvirkjunar er aðgangsstýrð upplýsingaveita sem er ætluð viðskiptavinum fyrirtækisins.
Aðgengi að upplýsingum á markaðsvefnum er stýrt með aðgangs- og lykilorðum. Sérstökum gagnasvæðum er úthlutað fyrir hvern viðskiptavin og hefur hann einn aðgang að upplýsingum sem þar eru vistaðar. Beitt er öruggum rekjanlegum aðferðum við úthlutun og notkun aðgangsorða, en hver aðili ber ábyrgð á meðferð og notkun upplýsinganna sem birtar eru á viðkomandi gagnasvæði.
Innskráning
Viðskiptaborð Landsvirkjunar úthlutar aðgangs- og lykilorðum að markaðsvef fyrirtækisins.
Í innskráningarreitina fyrir aðgang- og lykilorð eru slegin inn þau aðgangsorð, sem viðkomandi notandi hefur fengið úthlutað.
Eftir að notandi hefur skráð sig inn á markaðsvefinn birtast valmöguleikar fyrir þær upplýsingar, sem honum eru tengdar. Á markaðsvefnum geta viðskiptavinir m.a. lagt inn pantanir á rafmagni og fengið yfirilit yfir fyrri pantanir sínar.
Að notkun lokinn skráir notandi sig út á sérstökum útskráningarhnappi. Við það lokast aðgengið aðgengi að markaðsvefnum og notandanum er stýrt inn á almenna vefsíðu Landsvirkjunar.

