Laxárstöð III er yngsta aflstöðin í Laxá. Hvelfing sem hýsir vélasamstæðu stöðvarinnar var upphaflega hönnuð fyrir tvær 25 MW vatnsvélar. Var þá miðað við 56 m háa stíflu ofar í gljúfrinu og að heildarfallhæðin yrði 83 m. Þessari áætlun var harðlega mótmælt af Þingeyingum og lyktir urðu að Laxárstöð III var vígð árið 1973 með einum hverfli í stað tveggja og frekari áform á svæðinu lögð til hliðar.
Fram úr Laxárdal ganga Laxárgljúfur og þar eru Laxárstöðvarnar þrjár. Þær nýta um 70 m fall árinnar á 1.800 m kafla og afl þeirra er alls 27,5 MW. Aðrennsli í Mývatn er að mestu neðanjarðar gegnum hraunlög. Því er rennslið úr vatninu jafnt sem er ákjósanlegt fyrir virkjun vatnsafls.
Vatnasvið: | 1.550 km2 |
Meðalrennsli til virkjana: | 43 m3/s |
Fallhæð | |
---|---|
Laxá I: | 39 m |
Laxá II: | 29 m |
Laxá III: | 39 m |
Afl | |
Laxá I: | 5 MW |
Laxá II: | 9 MW |
Laxá III: | 13,5 MW |
Orkuframleiðsla: | 180 GWst á ári |
Lengd jarðganga í Laxá III | |
Vatnsvegir: | 850 m |
Þjónustugöng: | 190 m |
Hönnun | |
Laxá I: | Árni Pálsson, verkfræðingur |
Laxá II og III: | Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. |
Helstu verktakar | |
Laxá I: | Højgaard og Schultz, Danmörku |
Laxá II: | Stoð hf. (Laxá II) |
Laxá III: | Norðurverk haf. (Laxá III) |
Framleiðendur hverfla og rafala | |
Laxá I, vél 1: | Kværner Brug, Noregi (hverfill) |
A/s Titan, Danmörku (rafali) | |
Laxá I, vél 2: | James Leffel & Co, Bandaríkjunum (hverfill) |
Westinghouse, Bandaríkjunum (rafali) | |
Laxá II: | James Leffel & Co, Bandaríkjunum (hverfill) |
Westinghouse, Bandaríkjunum (rafali) | |
Laxá III: | Escher Wyss, Þýskalandi (hverfill) |
ASEA, Svíþjóð (rafali |