Erfitt efnahagsástand þrengir að eftirspurn

21.08.2020Fjármál

Afkoma Landsvirkjunar á fyrri árshelmingi lituð af erfiðu efnahagsástandi í heiminum.

Myndin sýnir stöðvarhús Fljótsdalsstöðvar
Myndin sýnir stöðvarhús Fljótsdalsstöðvar

Helstu atriði árshlutareiknings:

  • Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 69,4 milljónum USD (9,7 ma.kr.), en var 96,4 milljónir USD á sama tímabili árið áður og lækkar því um 28,0% milli tímabila. [1]
  • Hagnaður tímabilsins var 40,6 milljónir USD (5,6 ma.kr.) en var 68,6 milljónir USD á sama tímabili árið áður.
  • Rekstrartekjur námu 227,1 milljón USD (31,6 ma.kr.) og lækka um 32,6 milljónir USD (12,6%) frá sama tímabili árið áður.
  • Nettó skuldir lækkuðu um 60,2 milljónir USD (8,4 ma.kr.) frá áramótum og voru í lok júní 1.631,3 milljónir USD (226,8 ma.kr.).
  • Handbært fé frá rekstri nam 129,7 milljónum USD (18,0 ma.kr.) sem er 18,9% lækkun frá sama tímabili árið áður.

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Afkoma Landsvirkjunar á fyrri árshelmingi er lituð af erfiðu efnahagsástandi í heiminum um þessar mundir. COVID-19 faraldurinn hefur valdið samdrætti í eftirspurn hjá okkar helstu viðskiptavinum og sér þess merki í tekjum fyrirtækisins á tímabilinu, sér í lagi á öðrum fjórðungi ársins. Landsvirkjun hefur sem kunnugt er stutt við bakið á stórnotendum á þessum erfiðu tímum með því að bjóða þeim rafmagn á afsláttarkjörum til 31. október næstkomandi.

Selt heildarmagn raforku lækkaði um 6% milli ára og hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði dróst saman um 28% og nam 9,7 milljörðum króna. Þá lækkaði meðalálverð á tímabilinu um 13% og verð á Nord Pool-markaðinum um 75%, en hluti rafmagnsverðs til stórnotenda er tengdur þessum breytum. Þrátt fyrir þessar erfiðu ytri aðstæður tókst að lækka nettó skuldir um 8,4 milljarða króna frá áramótum. Horfur í rekstrarumhverfinu eru óvissar, en þær velta að miklu leyti á því hversu vel tekst að fást við útbreiðslu kórónuveirunnar og koma efnahagslífi heimsins í gang á ný.

Rekstur aflstöðva gekk vel á tímabilinu og vil ég þakka starfsfólki fyrirtækisins fyrir að leggja sig allt fram um að tryggja truflanalausan rekstur á meðan á þessum skæða faraldri hefur staðið.“

[1] Til viðmiðunar eru sýndar íslenskar krónur, notast var við gengi USD/ISK 139.