Góðar horfur fyrir afhendingu orku

06.10.2020Umhverfi

Nýtt vatnsár hófst 1. október sl. Öll miðlunarlón Landsvirkjunar eru sem næst full og fyrirtækið því í góðri stöðu að tryggja orkuafhendingu til viðskiptavina sinna á komandi vatnsári.

Nýtt vatnsár hófst 1. október sl. Öll miðlunarlón Landsvirkjunar eru sem næst full og fyrirtækið því í góðri stöðu að tryggja orkuafhendingu til viðskiptavina sinna á komandi vatnsári.

Í heildina var innrennsli á nýliðnu vatnsári nokkuð undir meðallagi. Haustið 2019 var kalt og þurrt. Niðurdráttur miðlunarlóna hófst um miðjan október og hélst nokkuð eindreginn fram á vor. Innrennsli vetrarins var vel undir meðallagi, og voru nóvember og mars slökustu mánuðirnir. Í lok vetrar var talsverður snjór á hálendinu og skilaði hann sér vel í vorflóðunum sem hófust um miðjan apríl á vestanverðu landinu og upp úr miðjum maí fyrir austan. Söfnun í miðlunarlón var með ágætum fram í lok júní en hægðist á í júlí, þegar innrennsli var vel undir meðallagi. Tíðin batnaði í ágúst og öll miðlunarlón Landsvirkjunar voru full upp úr miðjum mánuðinum.

Nýtt vatnsár hefst hjá Landsvirkjun 1. október ár hvert, en um það leyti eru miðlanir yfirleitt í hæstu stöðu eftir vorleysingar, jöklabráð sumarsins og upphaf haustrigninga. Þegar haustrigningum lýkur og vetur gengur í garð er byrjað að nýta miðlunarforðann. Vatn frá miðlunum stendur undir um helmingi af orkuvinnslu Landsvirkjunar yfir veturinn og fram á vor.

landsvirkjun.is/voktun