Landsvirkjun hefur fengið gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC fyrir árið 2020, en fyrirtækið hlaut það áður fyrir árin 2013, 2015, 2017, 2018 og 2019. Þetta er því sjötta skiptið í röð sem fyrirtækið nær þessum áfanga, en jafnlaunaúttekt var ekki gerð fyrir árin 2014 og 2016.
Úttektin, sem gerð var á grundvelli launa í október, leiddi í ljós að grunnlaun karla innan fyrirtækisins væru 2,1% hærri en grunnlaun kvenna. Heildarlaun karla voru 0,8% hærri en heildarlaun kvenna.
Sá munur sem er á grunn- og heildarlaunum er innan þeirra marka sem PwC hefur sett varðandi góðan árangur í jöfnum launum kynja.
Jafnlaunaúttekt PwC styður við úttekt á jafnlaunakerfi Landsvirkjunar, í samræmi við jafnlaunastaðalinn ÍST 85:2012. Landsvirkjun fékk vottun BSI á jafnlaunakerfi fyrirtækisins í desember 2018 og viðhaldsvottun var framkvæmd í desember 2020 sem sýndi að kerfið er virkt og hannað til þess að jafnréttis sé gætt við ákvörðun launa.
Hörður Arnarson, forstjóri:
„Það er okkur hjá Landsvirkjun mikið kappsmál að jafnréttis sé gætt við ákvörðun launa. Jafnlaunaúttekt PwC er afar mikilvæg stoð fyrir okkur í þeim efnum og staðfestir að jafnlaunakerfi fyrirtækisins virkar eins og til er ætlast. Það er einkar ánægjulegt að fá gullmerkið í sjötta skiptið og það hvetur okkur til dáða í ár sem fyrri ár.Það er okkur hjá Landsvirkjun mikið kappsmál að jafnréttis sé gætt við ákvörðun launa. Jafnlaunaúttekt PwC er afar mikilvæg stoð fyrir okkur í þeim efnum og staðfestir að jafnlaunakerfi fyrirtækisins virkar eins og til er ætlast. Það er einkar ánægjulegt að fá gullmerkið í sjötta skiptið og það hvetur okkur til dáða í ár sem fyrri ár.“