Landsvirkjun í samtali við Rio Tinto

12.02.2020Fyrirtækið

Krefjandi aðstæður á álmörkuðum og eigum samtal við Rio Tinto til þess að fá sameiginlega sýn á stöðu mála.

Rio Tinto, eigandi álversins í Straumsvík, hefur tilkynnt að leitað sé leiða til þess að bæta samkeppnisstöðu álversins í þeim krefjandi aðstæðum sem nú eru uppi á álmörkuðum.

Eins og þekkt er eru aðstæður á álmörkuðum mjög krefjandi um þessar mundir, meðal annars út af lágu álverði, minni eftirspurn og mikilli framleiðsluaukningu í Kína undanfarin ár. Einnig hefur álverið í Straumsvík lent í rekstrarerfiðleikum sem hefur meðal annars haft áhrif á afkomu þess.

Landsvirkjun og álverið í Straumsvík hafa átt í farsælu og löngu viðskiptasambandi frá stofnun. Núgildandi raforkusamningur milli Landsvirkjunar og Rio Tinto hefur verið í gildi síðan 2010.

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Við sýnum því skilning að aðstæður fyrirtækisins eru krefjandi og eigum í samtali við Rio Tinto til þess að fá sameiginlega sýn á stöðu mála.

Við höfum sagt og teljum áfram að raforkusamningurinn sé sanngjarn fyrir báða aðila og að það séu fleiri þættir en raforkuverðið sem hafa áhrif á þeirra stöðu en þetta erum við að greina nánar í sameiningu.“