Kísilríkar snyrtivörur úr jarðhitavatni

20.04.2020Fyrirtækið

Landsvirkjun og MýSilica semja um uppbyggingu og nýsköpun við Mývatn.

Vegna COVID-19 veirufaraldsins var undirritunarfundurinn haldinn með aðstoð fjarfundaforrits. Ofar til vinstri er Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar, við hlið hennar er Hörður Arnarson forstjóri. Neðar til vinstri er Fida Abu Libdeh, stofnandi MýSilica og við hlið hennar er Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir viðskiptaþróunarstjóri. Á minni mynd má sjá Harald Hallgrímsson, forstöðumann viðskiptaþróunar og sölu, en aðrir viðstaddir voru Helgi Jóhannesson, yfirmaður lögfræðimála, Gylfi Már Geirsson, yfirmaður orkukaupa og Geir Arnar Marelsson, lögfræðingur.

Landsvirkjun og MýSilica hafa undirritað samning um rannsóknir, þróun og framleiðslu á kísilríkum húð- og snyrtivörum úr jarðhitavatni virkjana á starfssvæði Landsvirkjunar á Norðurlandi. Byggð verður upp aðstaða sem mun nýtast fyrir nýsköpun og fjölnýtingu og verður MýSilica fyrsta sprotafyrirtækið til að nýta aðstöðuna.

Verkefnið gengur út á að vinna steinefnaríkt – og þá sérstaklega kísilríkt – hráefni úr jarðhitavatni sem fellur til við orkuvinnslu. Þetta hráefni verður svo nýtt til þess að framleiða náttúrulegar húðvörur.

Markmið samningsins er að auka verðmætasköpun úr þeim efnum sem verða til við orkuvinnslu Landsvirkjunar og hafa hingað til ekki verið nýtt sérstaklega. Verkefnið bætir þannig nýtingu auðlinda og skapar tækifæri til uppbyggingar og nýsköpunar fyrir nærsamfélagið.

MýSilica er nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og markaðsetningu á húðvörum. Hjá MýSilica starfa sérfræðingar sem hafa að baki margra ára reynslu í nýtingu auðlinda og framleiðslu á verðmætum úr skiljuvatni jarðvarmavirkjana. Verkefnið gengur út á að vinna steinefnaríkt og þá sérstaklega kísilríkt hráefni úr jarðhitavatni sem síðan verður nýtt til þess að framleiða náttúrulega húðvörur.

Fida Abu Libdeh, stofnandi MýSilica:

„Maður gat ekki annað en heillast af fegurð náttúrunnar á Norðurlandi og sérstaklega á Mývatni. Við sjáum tækifæri til nýsköpunar, aukinnar nýtingar á náttúrulegum auðlindum og sköpun á verðmæti í sátt við náttúruna. Verkefnið er búið að vera í vinnslu í nokkur ár og nú fögnum við þessum stóra áfanga. Við erum þakklát fyrir stuðninginn sem við fengum fyrir norðan. Við hlökkum til að hefja sköpun á verðmætum með Landsvirkjun sem öflugan samstarfsaðila okkar.“

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Við hjá Landsvirkjun fögnum því að fá að taka þátt í uppbyggingu sprota- og nýsköpunarstarfs á Norðurlandi. Við sjáum mikil tækifæri í frekari nýtingu þeirra strauma sem falla til í starfsemi okkar. Nýsköpunarstarfsemi á borð við þetta spennandi verkefni MýSilica getur orðið mikilvægur þáttur í hringrásarhagkerfinu og stuðlað að aukinni sjálfbærri þróun og bættri nýtingu auðlindarinnar.“