Landsvirkjun og MýSköpun semja um þörungaræktun

28.10.2020Fyrirtækið

Fjölnýting á jarðhita sem felur í sér rannsóknir, ræktun, þróun og framleiðslu á þörungum á starfssvæði Landsvirkjunar á Norðurlandi.

Undirritunarfundurinn haldinn með aðstoð fjarfundaforrits. Í efri röð eru, frá vinstri: Hjörleifur Einarsson, stjórnarformaður MýSköpunar, Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir viðskiptaþróunarstjóri og Kristín Linda  aðstoðarforstjóri. Í neðri röð: Geir Arnar Marelsson, lögfræðingur, Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar og sölu og Júlía K. Björke, framkvæmdastjóri MýSköpunar.
Undirritunarfundurinn haldinn með aðstoð fjarfundaforrits. Í efri röð eru, frá vinstri: Hjörleifur Einarsson, stjórnarformaður MýSköpunar, Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir viðskiptaþróunarstjóri og Kristín Linda aðstoðarforstjóri. Í neðri röð: Geir Arnar Marelsson, lögfræðingur, Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar og sölu og Júlía K. Björke, framkvæmdastjóri MýSköpunar.

Landsvirkjun og MýSköpun ehf. hafa undirritað samning um rannsóknir, ræktun, þróun og framleiðslu á þörungum á starfssvæði Landsvirkjunar á Norðurlandi. Starfsemin verður fyrst um sinn í skrifstofuhúsnæði sem áður tilheyrði Kísiliðjunni við Mývatn.

Verkefnið snýst um að meta fýsileika þess að MýSköpun ehf. rannsaki og rækti þörunga sem m.a. er að finna í Mývatni og þrói, framleiði og markaðssetji í framhaldinu verðmætar neytendavörur. t.d. úr spírulínu. Horft verður til fjölnýtingar jarðhita þar sem straumar frá jarðhitavirkjunum, t.d. raforka, heitt vatn, kalt vatn og jarðgös, eru nýttir við ræktunina.

Markmið samningsins er að auka verðmætasköpun úr þeim efnum sem verða til við orkuvinnslu Landsvirkjunar. Verkefnið bætir þannig nýtingu auðlinda og skapar tækifæri til uppbyggingar og nýsköpunar fyrir nærsamfélagið.

MýSköpun ehf. er nýsköpunarfyrirtæki í Mývatnssveit sem er ætlað að auka nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu. Markmið MýSköpunar er að vera leiðandi í framleiðslu á lífefnum úr þörungum, með fjölnýtingu jarðhita í fyrirrúmi og nýtingu auka afurða sem verða til í framleiðsluferlinu. Ræktun og hagnýting þörunga hefur í auknum mæli vakið áhuga vegna fjölbreyttra lífefna sem þeir framleiða og hagnýtingu þeirra í ýmsar söluvörur. Þegar talað er um lífefni er átt við efni á borð við fitusýrur, prótein, fjölsykrur, steinefni, karóten og önnur litarefni, auk fjölfenóla.

Hjörleifur Einarsson, stjórnarformaður MýSköpunar:

Samningurinn er mjög mikilvægur fyrir MýSköpun og gerir okkur kleift að auka framleiðslugetu fyrirtækisins og færa okkur af rannsóknastofunni yfir í tilraunaframleiðslu. Verkefnið hefur verið í þróun í nokkur ár. Nú látum við á það reyna hvort sá árangur sem þegar hefur náðst standi undir þeim væntingum sem við höfum haft frá byrjun, þ.e. að náttúruauðlindirnar geti verið grunnur að sjálfbærri ræktun örþörunga af Mývatnssvæðinu. Samstarf okkar við Landsvirkjun hefur á undanförnum árum verið ómetanlegt og við væntum þess að samningurinn sé enn ein varðan á sameiginlegri vegferð.“

Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar:

„Okkur hjá Landsvirkjun þykir mjög ánægjulegt að fyrirtækið geti lagt sitt af mörkum til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar á starfssvæðum fyrirtækisins. Það er mikill hugur í fólki í Mývatnssveit og ég er sannfærð um að sá hugur ber heimafólk hálfa leið. Krafturinn og eljan ber það án efa leiðina á enda. Ég hlakka til að fylgjast með þeirri vegferð.“