Mbl.is birti nýverið frétt og viðtal við Stefaníu Guðrúnu Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs, í kjölfar greinar sem hún skrifaði um tímabundna lækkun raforkuverðs til stórnotenda.
„Það er hagur okkar að þessi fyrirtæki, sem við erum í langtímaviðskiptasambandi við og eru mörg hver grundvöllur efnahagskerfis okkar, standi af sér ástandið,“ segir Stefanía í samtali við Morgunblaðið.
"Stórnotendur eru skilgreindir sem þeir notendur sem nota allt árið yfir 10 MW af orku, eða sem jafngildir 87,6 gígawattstundum á ári. Að sögn Stefaníu eru það álver, gagnaver og kísilver, allt fyrirtæki þar sem raforka er stór hluti af breytilegum kostnaði. Fyrirtækin hafa gert langtímasamninga um raforkuverð en nú hefur Landsvirkjun, sem fyrr segir, veitt þeim tímabundinn afslátt" segir í grein Morgunblaðsins.