Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Opnar fundinn.
Hlutverk Landsvirkjunar er að hámarka afrakstur af þeim orkulindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir með sjálfbæra nýtingu, verðmætasköpun og hagkvæmni að leiðarljósi. Á haustfundinum þann 13. nóvember verður opin umræða um hvernig við getum best staðið undir því hlutverki í breyttu umhverfi.
Landsvirkjun hefur verið leiðandi í uppbyggingu íslenska raforkukerfisins og byggt upp öflugan raforkubúskap í farsælu samstarfi við viðskiptavini okkar í tæpa hálfa öld. Á þeim trausta grunni viljum við byggja.
Landslag orkumála í heiminum er gjörbreytt og orkuverð fer hækkandi. Margar þjóðir telja orkuöryggi sínu ógnað og mengun er vaxandi vandamál. Samkeppni í raforkuframleiðslu og opnun raforkumarkaða milli landa hefur leitt af sér nýjar áskoranir og tækifæri. Vatnsorka sem er bæði endurnýjanleg og stýranleg er orðin eftirsóttari en nokkru sinni áður. Á sama tíma vinna Íslendingar mesta raforku í heiminum miðað við íbúafjölda.
Í þessu nýja umhverfi felast tækifæri fyrir þjóðina. Það er stefna Landsvirkjunar að byggja upp stærri og fjölbreyttari hóp viðskiptavina og viðræður okkar staðfesta að fjölmörg iðnfyrirtæki eru áhugasöm um rekstur hér á landi þrátt fyrir erfitt efnahagsástand í heiminum.
Staða Íslands er því um margt eftirsóknarverð og þau miklu verðmæti sem í orkunni búa geta bætt lífskjör á Íslandi ef vel er á haldið. Hvers vegna er raforka verðmæt vara? Af hverju ættum við að auka raforkuframleiðslu? Hvernig tryggjum við samkeppnishæft rekstrarumhverfi iðnaðar á Íslandi? Hverjir eru kostir og gallar sæstrengs? Hvernig gætum við hagsmuna Íslands?
Við teljum mikilvægt að sem breiðust sátt ríki um þessi stóru mál og köllum eftir opinni umræðu um þá kosti sem nú eru að opnast.