Grunnskóli Skútustaðahrepps, Reykjahlíð

Mælingar á brennisteinsvetni hafa verið stundaðar í Reykjahlíð frá því í febrúar 2011 og á Eyvindarstöðum frá því í desember 2011. Tilgangur mælinganna er að fylgjast með styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti vegna jarðhitanýtingar og rannsókna. Helstu uppsprettur brennisteinsvetnis á svæðinu eru Gufustöðin í Bjarnarflagi (5 MW), Kröflustöð (60 MW), Þeistareykjastöð (90 MW) og náttúrulegt útstreymi frá jarðhitasvæðum. Í maí 2013 var bætti við mæli í Vogum og í mars 2015 var bætt við mæli á Húsavík sem var í framhaldinu færður upp á Reykjaheiði.

Línuritið hér að ofan birtir 24 stunda hlaupandi meðaltal á tíu mínútu fresti en samkvæmt reglugerð nr. 514/2010 skal það að jafnaði vera undir 50 µg/m3 en má þó fara upp fyrir þann styrk þrisvar sinnum á ári. Um óyfirfarnar mæliniðurstöður er að ræða.

Reykjahlíð