Raforku­markaðurinn

Íslenski raforkumarkaðurinn skiptist í tvo aðskilda undirmarkaði - almennan markað og stórnotendamarkað. Stórnotendur nota um 80% af raforkunni á Íslandi, fyrirtæki um 15% og heimili um 5%.

Skipulag íslenska raforku­markaðarins

Skoða yfirlit yfir viðskiptavini

Raforka er skilgreind sem markaðsvara og samkeppni ríkir á markaðinum. Jafnframt gilda almennar samkeppnisreglur um sölu rafmagns á Íslandi. Orkufyrirtækjum í opinberri eigu er því óheimilt að selja raforku undir kostnaðarverði. Eftirlitsstofnun EFTA fylgist með því að reglum sem gilda um raforkumarkaði innan evrópska efnahagssvæðisins sé fylgt.

Stórnotendur

Til að teljast stórnotandi þarf notandi samkvæmt raforkulögum að nota 80 GWs á ári (um 10 MW) á einum og sama staðnum. Þessir notendur tengjast svo beint við flutningskerfi Landsnets og fá orkuna afhenta þaðan á hárri spennu.

Almennir notendur

Á almennum markaði eru þeir notendur sem nota minna en 80 GWs á sama staðnum, bæði heimili og fyrirtæki. Þessir aðilar fá orkuna afhenta frá dreifiveitum á lágri spennu. Áður hafa dreifiveiturnar fengið orkuna afhenta frá flutningskerfi Landsnets.

Heildsölu­viðskiptavinir

Heildsölumarkaður raforku er vettvangur viðskipta með raforku á milli raforkusala. Við seljum ekki rafmagn beint til heimila eða smærri fyrirtækja heldur á heildsölumarkaði til sölufyrirtækja sem selja það áfram til endanotenda. Um 2 TWst eða 15% af rafmagnssölunni fer fram með þessum hætti.

Hlutdeild Landsvirkjunar á heildsölumarkaði er breytileg milli ára. Upprunaábyrgðir sem votta raforkunotkunina sem endurnýjanlega, fylgja með allri sölu á rafmagni frá okkur í heildsölu.

Kerfisstjórnun

Yfirlit yfir viðskiptavini

Til að tryggja örugga afhendingu raforku til kaupenda á Íslandi kaupir flutningsfyrirtækið Landsnet ýmsa kerfisþjónustu af orkufyrirtækjunum. Þau kaup fara ýmist fram í gegnum útboð eða beina samninga við orkufyrirtækin. Landsvirkjun er virkur þátttakandi á markaði með kerfisþjónustu og selur Landsneti m.a. orku vegna flutningstapa, reglunaraflstryggingu og aðgang að reiðuafli.