Landsvirkjun

Aflstöðvar

Fimmtán aflstöðvar í rekstri á fimm starfssvæðum

Landsvirkjun starfrækir þrettán vatnsaflsstöðvar og tvær jarðvarmastöðvar víðs vegar um landið á fimm starfssvæðum. Við rekstur aflstöðva er lögð áhersla á heildræna sýn þar sem ráðdeild, áreiðanleiki og sambýli starfseminnar við umhverfi og samfélag eru höfð að leiðarljósi.

Íslendingar vinna 99% allrar raforku með endurnýjanlegum orkugjöfum. Landsvirkjun vinnur þrjá fjórðu hluta þessarar orku úr vatnsafli og jarðvarma og er í hópi stærstu fyrirtæki Evrópu á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Árleg orkuvinnsla fyrirtækisins er um 12.500 GWst.