Í fararbroddi þriðja árið í röð

07.05.2024Umhverfi

Landsvirkjun situr þriðja árið í röð á lista Financial Times yfir þau evrópsku fyrirtæki sem hafa lækkað losun á framleiðslueiningu hvað mest á árunum 2017-2022.

Í fararbroddi þriðja árið í röð

Landsvirkjun situr þriðja árið í röð á lista Financial Times yfir þau evrópsku fyrirtæki sem hafa lækkað losun á framleiðslueiningu hvað mest á árunum 2017-2022. Orkufyrirtæki þjóðarinnar var fyrsta íslenska fyrirtækið sem komst á listann en alls fá 500 fyrirtæki viðurkenningu sem Europe Climate Leaders

Samdráttur okkar í losun á framleiðslueiningu nam 8,7% tímabilið 2017-2022. Aðeins eitt annað íslenskt fyrirtæki er á listanum í ár en það er Arionbanki sem nú er þar annað árið í röð. Við óskum bankanum til hamingju með þann árangur.

Listinn tekur til beinnar losunar og losunar vegna orkunotkunar. Þá var einnig horft m.a. til losunar á hagnað, samdráttar í heildarlosun og einkunnar viðkomandi fyrirtækis hjá alþjóðlegu samtökunum CDP, en einkunn Landsvirkjunar þar er A og telst fyrirtækið leiðandi í loftslagsmálum.

Þá er rétt að taka fram að fyrirtæki sem valda umtalsverðum umhverfisskaða komast ekki á þennan lista Financial Times jafnvel þótt þau uppfylli kröfur um samdrátt í losun.

Losun með því lægsta sem þekkist

Losun í starfsemi Landsvirkjunar árið 2023 var 3,3 grömm af koldíoxíði á hverja framleidda kílówattstund og er með því lægsta sem þekkist hjá orkuframleiðendum, jafnvel þegar borið er saman við aðra endurnýjanlega orkuvinnslu enda er viðmiðið fyrir græna orkuvinnslu í heiminum um 100 g/kWst.

Listi Financial Times er enn ein staðfestingin á góðum árangri Landsvirkjunar í loftslagsmálum.