Lausar stöður

  • Við óskum eftir liðsauka í öflugt teymi starfsfólks á Þjórsársvæði þar sem við rekum sjö vatnsaflsstöðvar og tvær vindmyllur.

    Í starfinu felst viðhald, eftirlit og rekstur aflstöðva og veitumannvirkja. Starfið er fjölbreytt og krefjandi en verkefni fela meðal annars í sér ástandsmælingar og greiningar á raf- og vélbúnaði.

    Hæfni og þekking:

    • Menntun af rafmagnssviði, rafvirkja- og/eða rafiðnfræði
    • Þekking á viðhaldi búnaðar; véla-, vökva- og rafkerfa
    • Reynsla af raforkuvirkjum og iðnaði er kostur
    • Lipurð í mannlegum samskiptum og samstarfi
    • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að tileinka sér nýjungar
    • Góð tölvukunnátta

    • Umsóknarfrestur frá: 20.03.2024
    • Umsóknarfrestur til: 04.04.2024
    • Hafa samband: Þóra María, mannaudur@landsvirkjun.is
  • Við óskum eftir liðsauka í öflugt teymi starfsfólks okkar í Blöndustöð.

    Í starfinu felst viðhald, eftirlit og rekstur aflstöðva og veitumannvirkja. Starfið er fjölbreytt og krefjandi en verkefni fela meðal annars í sér ástandsmælingar og greiningar á raf- og vélbúnaði.

    Hæfni og þekking:

    • Menntun á rafmagns- og/eða vélasviði t.d. rafvirkjun, rafiðnfræði, vélfræði, véliðnfræði
    • Þekking á viðhaldi búnaðar; véla-, vökva- og rafkerfa
    • Reynsla af raforkuvirkjum og iðnaði er kostur
    • Lipurð í mannlegum samskiptum og samstarfi
    • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að tileinka sér nýjungar
    • Góð tölvukunnátta

    • Umsóknarfrestur frá: 20.03.2024
    • Umsóknarfrestur til: 04.04.2024
    • Hafa samband: Þóra María, mannaudur @landsvirkjun.is
  • Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi í teymi okkar hjá rekstri vatnsafls. Við berum ábyrgð á orkuvirkjum Landsvirkjunar þannig að þau skili hlutverki sínu. Í því felst m.a. viðhaldsstjórnun og viðhald mannvirkja, þjónustubygginga og lóða, ásamt samningagerð við birgja og innkaup sem fylgja daglegum rekstri og viðhaldi búnaðar.

    Helstu verkefni:

    • Umsjón með innkaupum
    • Umsjón með gerð samninga við birgja
    • Eftirlit með rekstri samninga
    • Umsjón með gerð fjárhagsáætlana
    • Umsjón með reglulegu kostnaðareftirliti

    Hæfni:

    • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði eða rekstrarverkfræði
    • Umtalsverð reynsla af tengdum störfum er æskileg
    • Mikil samskiptafærni, jákvætt hugarfar og metnaður til að vera hluti af orkumiklu teymi
    • Sjálfstæði, skipulagsfærni og lausnamiðuð hugsun

    • Umsóknarfrestur frá: 21.03.2024
    • Umsóknarfrestur til: 07.04.2024
    • Hafa samband: Þóra María, mannaudur@landsvirkjun.is
  • Viltu vakta og stýra hjá okkur?

    Við hjá Landsvirkjun vinnum að uppsetningu nýrrar stjórnstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.  Nú leitum við að rétta einstaklingnum í teymi reksturs og áætlunargerðar en teymið sér um daglega vöktun og stýringu aflstöðva okkar í vaktavinnu.

    Helstu verkefni:

    • Dagleg vöktun og stýring aflstöðva
    • Sipulagning vinnslu og nýtingu miðlana
    • Innleiðing á nýju orkustjórnkerfi og þróun þess til framtíðar
    • Samskipti við rekstraraðila raforkukerfisins
    • Þróun ferla sem tryggja öruggan rekstur raforkukerfisins

    Hæfni:

    • Menntun af véla- og eða rafmagnssviði, t.d. rafvirkjun, vélfræði, iðnfræði, tæknifræði
    • Samskiptafærni og jákvætt viðmót
    • Áhugi á rekstri raforkukerfisins
    • Reynsla úr orkugeira æskileg
    • Sjálfstæði, skipulagsfærni og lausnamiðuð hugsun

    • Umsóknarfrestur frá: 22.03.2024
    • Umsóknarfrestur til: 07.04.2024
    • Hafa samband: Þóra María, mannaudur@landsvirkjun.is
  • Verkstjórn sumarvinnu ungmenna í Laxá 2024

    Við leitum af verkstjóra til að halda utan um sumarvinnu Landsvirkjunar í Laxá. Verkstjórar sjá um að leiða og hafa umsjón með hópi ungmenna 16-19 ára sem sinna ýmsum verkefnum tengdum umhverfinu og umhirðu í kringum aflstöðvar okkar.

    Í starfinu felst ábyrgð á daglegum verkefnum vinnuhópsins, skipulagning, leiðsögn og fræðsla um rétt vinnubrögð og öryggi í starfi. Við viljum efla liðsheild og hvetja til góðra verka.

    Helstu verkefni og ábyrgð verkstjóra:

    • Dagleg ábyrgð og yfirumsjón með sumarvinnuhópnum í samvinnu við yfirmann
    • Skipulagning og forgangsröðun verkefna
    • Gefa skýr fyrirmæli
    • Útdeila verkefnum til hópstjóra og ungmenna og þátttaka í störfum þeirra
    • Leiðbeina um verklag og aðferðir og hafa eftirlit með að vel og rétt sé unnið
    • Samskipti við foreldra/forráðamenn og aðra hagsmunaaðila í nærsamfélaginu
    • Halda utan um tímaskráningar og skila þeim inn til yfirmanns
    • Vinna markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan í hópnum

    Hæfniskröfur:

    • Reynsla og áhugi af störfum með ungu fólki
    • Góðir samskiptahæfileikar
    • Stundvísi
    • Skipulögð og fagleg vinnubrögð
    • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
    • Menntun sem nýtist í starfi
    • Bílpróf

    Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl n.k.

    Nánari upplýsingar sumarstarf@landsvirkjun.is

    • Umsóknarfrestur frá: 26.03.2024
    • Umsóknarfrestur til: 08.04.2024
    • Hafa samband: Mannauður (sumarstarf@landsvirkjun.is)

Almenn umsókn

  • Landsvirkjun leggur áherslu á að vera í fararbroddi sem vinnustaður fyrir framúrskarandi starfsfólk. Hjá fyrirtækinu starfar traustur hópur starfsfólks með býr yfir fjölbreyttri reynslu og þekkingu.

    Viljir þú slást í hóp starfsfólks Landsvirkjunar getur þú hér sett inn almenna umsókn um starf hjá Landsvirkjun.

    Athugið að almenn umsókn kemur ekki í stað umsóknar um auglýst störf. Við hvetjum þig til að fylgjast áfram með auglýstum störfum og sækja um ef þú uppfyllir skilyrði um menntun og hæfni.

    • Umsóknarfrestur frá: 01.01.2024
    • Umsóknarfrestur til: 31.12.2024
    • Hafa samband: Mannauður og menning (mannaudur@landsvirkjun.is)

Persónuverndar­stefna

Lesa persónuverndarstefnu fyrir umsækjendur

Landsvirkjun er umhugað um öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með innan fyrirtækisins.

Þess vegna höfum sett okkur sérstaka persónuverndarstefnu fyrir umsækjendur um störf.

Hún segir meðal annars til um hvaða persónuupplýsingum við söfnum, hvers vegna, hversu lengi upplýsingarnar eru varðveittar, hvert þeim kann að vera miðlað og hvernig við tryggjum öryggi þeirra.