Orkusýningin í Ljósafossstöð

Orkusýningin í Ljósafossstöð er lokuð. Hún verður opnuð aftur í júní 2024.

Orka til framtíðar

Sjá meira um Ljósafossstöð

Á gagnvirkri orkusýningu Landsvirkjunar í Ljósafossstöð geta gestir á öllum aldri skyggnst inn í undraverðan heim raforkunnar og leyst orku úr læðingi með eigin þyngd, styrk og afli.

Einnig er hægt að kynnast því hvernig Landsvirkjun vinnur allt sitt rafmagn úr vatni, jarðvarma og vindi og virkjar þannig krafta náttúrunnar til að knýja allt frá snjallsímum og eldavélum til stórra álvera.

Fjölbreytt og fræðandi sýningaratriði veita orkuboltum á öllum aldri tækifæri til að safna saman rafeindum, dæla úr lónum, fanga vindinn og lýsa upp heiminn á 120 árum.

Verið velkomin

Heimsóknarbeiðni fyrir hópa

Orkusýningin er lokuð. Hún verður opnuð aftur í júní 2024.

Ljósafossstöð er staðsett á Sogssvæðinu við Úlfljótsvatn og er í um 50 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Aðgangur að sýningunni er gjaldfrjáls.

Ef þú hyggst koma í heimsókn með hóp (10 eða fleiri) þarftu að fylla út heimsóknarbeiðni.