Heildsala

Heildsöluviðskipti Landsvirkjunar fara að mestu leyti fram á skipulögðum raforkumörkuðum. Landsvirkjun tók fyrstu skref sín inn á slíkan markað í maí 2024, þegar fyrirtækið tók þátt í söluferlum Vonarskarðs.

Heildsöluviðskipti

Heildsöluviðskipti fara nú fram í gegnum Vonarskarð og Elmu orkuskipti. Landsvirkjun hóf þátttöku á stundarrafmagnsmarkaði Vonarskarðs og næstadagsmarkaði Elmu í apríl 2026. Með þátttöku á skipulögðum raforkumarkaði eykst gagnsæi þar sem upplýsingar um verð og viðskipti eru aðgengilegar.

Niðurstöður um verð og viðskipti á raforkumörkuðum má nálgast hér fyrir neðan.

Orkumiðlun Landsvirkjunar

Orkumiðlun sér um þátttöku fyrirtækisins á heildsölumarkaði með raforku.

Orkumiðlun hefur jafnframt umsjón með rekstri raforkusamninga og ber ábyrgð á uppgjöri þeirra. Þá greinir deildin stöðu og þróun heildsölumarkaða og sér um sölu á kerfisþjónustu.

Orkumiðlun Landsvirkjunar

Orkumiðlun sér um þátttöku fyrirtækisins á heildsölumarkaði með raforku.

Orkumiðlun hefur jafnframt umsjón með rekstri raforkusamninga og ber ábyrgð á uppgjöri þeirra. Þá greinir deildin stöðu og þróun heildsölumarkaða og sér um sölu á kerfisþjónustu.

Viðskiptastjóri

Ólöf Stefánsdóttir

Viðskiptastjóri

Heimir Þórisson

Viðskiptastjóri

Arndís Einarsdóttir

Raforka til húshitunar

Á sumum stöðum á Íslandi er raforka notuð til húshitunar þar sem hitaveita er ekki til staðar. Haustið 2024 gerðu Landsvirkjun og raforkusölufyrirtæki fjögurra ára samninga um sölu á forgangsorku til þeirrar notkunar. Orkan er nýtt meðal annars á Seyðisfirði, í Snæfellsbæ, á Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum.

Þróun meðalverðs í heildsölu

Á línuritinu hér fyrir neðan má sjá þróun á meðalsöluverði í heildsölu frá árinu 2006, á verðlagi ársins 2025. Gerð er grein fyrir meðalsöluverði Landsvirkjunar í heildsölu í ársreikningi.

Skilmálar heildsölusamninga