Stækkun Sigöldustöðvar

Velkomin á vef um stækkun Sigöldustöðvar. Hér getur þú nálgast allar helstu upplýsingar um verkefnið og framkvæmdir sem því tengjast.

Stækkun Sigöldustöðvar

Upphafleg hönnun Sigöldustöðvar gerði ráð fyrir þeim möguleika að hægt yrði að stækka stöðina síðar og var tekið tillit til þess við byggingu stöðvarhúss og inntaks. Stækkunin felur í sér viðbyggingu suðvestan við núverandi stöðvarhús með fjórðu vélasamstæðunni og nýrri þrýstipípu. Auk þess verður frárennslisskurður breikkaður næst stöðinni. Við stækkunina eykst uppsett afl Sigöldustöðvar úr 150 MW í 215 MW.

Markmiðið með framkvæmdinni er að auka sveigjanlegt afl, reglu‑ og viðbragðsgetu raforkukerfisins og bæta nýtni, án þess að mynda ný miðlunarlón. Flest leyfi fyrir framkvæmdinni eru komin í hús. Einungis er eftir að fá framkvæmdaleyfi fyrir stækkuninni.

Stefnt er að því að verkinu ljúki haustið 2029.

  • Uppsett afl

    0MW

    aukning úr 150 í 215 MW

  • Virkjað rennsli

    0m3/s

    aukning úr 240 í 350 m3/s

  • Ársverk við framkvæmdir

    0

Staða framkvæmda

Í mars 2025 var byrjað á undirbúningi af ýmsum toga. Í kjölfarið var hafist handa við vatnsöflun fyrir vinnubúðasvæði. Gert er ráð fyrir að starfsfólk Landsvirkjunar og verktaka á svæðinu verði að jafnaði um 110 talsins, en mest um 140 þegar flest verður. Vegna framkvæmdanna verður vinnsla stöðvuð um tveggja mánaða skeið sumarið 2026 í júlí og ágúst. Eins verður vinnsla stöðvuð um fjögurra mánaða skeið sumarið 2028, en nánari dagsetningar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Ýmiss konar undirbúningur hefur verið í gangi á árinu 2025 s.s. undirbúningur fyrir vinnubúðir, lagning rafmagns þangað og ljósvæðing, uppsetning fjarskiptamasturs og skilta og svo mætti lengi telja. Framkvæmdir við sjálfa stækkun Sigöldustöðvar hófust haustið 2025 þar sem byrjað að grafa fyrir stækkun stöðvarhússins.

Reiknað er með að framkvæmdir við alla verkþætti hefjist sumarið 2026 og að verklok verði haustið 2029.

Hvernig mun svæðið breytast?

Hér getur þú séð hvernig Sigöldustöð mun líta út fyrir og eftir framkvæmdir. Dragðu sleðann til vinstri og hægri til að sjá breytinguna.

FyrirEftir
FyrirEftir

Um Sigöldustöð

Sigöldustöð var tekin í notkun árið 1978 og er 150 MW vatnsaflsstöð sem getur unnið 930 gígavattstundir á ári. Hún nýtir Krókslón sem inntakslón og er með heildarfallhæð um 72 m, en frárennsli fer um skurð niður í Hrauneyjalón. Í stöðvarhúsinu eru þrjár 50 MW vélasamstæður.

Myndbönd