Framkvæmdir á Þeistareykjum

Velkomin á vef um framkvæmdaverkefni við Þeistareykjastöð. Hér getur þú nálgast helstu upplýsingar um verkefnin og framkvæmdir sem þeim tengjast.

Um verkefnin

Framkvæmdaverkefnin við Þeistareyki eru þrjú:

  1. Stækkun Þeistareykjastöðvar
    - Þriðja vélasamstæðan sett upp í Þeistareykjastöð.
    - Áætlað er að framkvæmdir hefjist á fyrri hluta árs 2028.
    - Stefnt er að gangsetningu fyrir lok árs 2031.
    Sjá nánar hér
  2. Toppvél
    - Uppsetning toppvélar sem vinnur orku úr háþrýstri gufu.
    - Áætlað er að framkvæmdir hefjist sumarið 2026.
    - Stefnt er að gangsetningu undir lok árs 2028.
    Sjá nánar hér
  3. Fjölnýtingarhús
    - Bygging fyrsta hússins á fjölnýtingarlóð.
    - Framkvæmdir hófust í lok apríl 2026.
    - Stefnt er að því að taka húsið í notkun sumarið 2026.
    Sjá nánar hér

Ábyrg hagnýting jarðhitans

Framkvæmdaverkefnin við Þeistareyki eru liður í áframhaldandi þróun orkuvinnslu á Norðausturlandi. Þau fela í sér skýra áherslu á bætta nýtingu, aukna raforkuvinnslu og ábyrga umgengni um auðlindina með því að draga úr umhverfisáhrifum hagnýtingarinnar.

Verkefnin snúast jafnframt um heildarendurskoðun á hagnýtingu jarðhitans. Stækkun stöðvarinnar, uppsetning toppvélar og þróun fjölnýtingarverkefna stuðla að betri orkunýtni, aukinni verðmætasköpun og nýjum tækifærum fyrir atvinnulíf og nýsköpun á svæðinu. Þau byggja á ítarlegum rannsóknum og sjálfbærri nálgun með langtímahagsmuni samfélags og umhverfis að leiðarljósi.

Um Þeistareykjastöð

Þeistareykjastöð var fyrsta jarðvarmavirkjunin sem Landsvirkjun reisti frá grunni. Uppsett afl stöðvarinnar er 90 megavött og getur hún unnið 740 gígavattstundir á ári.

Við byggingu stöðvarinnar var meginmarkmiðið að reisa hagkvæma og áreiðanlega stöð sem tekur mið af umhverfi sínu og náttúru.