Sala á raforku
Að jafnaði nemur árleg raforkusala Landsvirkjunar um 14 TWst.
Stórnotendur
Um 85% orkunnar eru seld til stórnotenda, þar á meðal orkusækins iðnaðar og annarrar orkusækinnar starfsemi, svo sem gagnavera og landeldis. Á meðal viðskiptavina Landsvirkjunar eru mörg af stærstu fyrirtækjum landsins sem gegna mikilvægu hlutverki í íslensku atvinnulífi og útflutningi.
Heildsölumarkaður
Landsvirkjun tekur þátt á heildsölumarkaði og selur ásamt öðrum orkufyrirtækjum raforku til sölufyrirtækja sem aftur selja það í smásölu til heimila og smærri fyrirtækja. Að jafnaði eru um 2 TWst rafmagns seldar í gegnum heildsölumarkað, eða um 15% af heildarraforkusölu Landsvirkjunar.

