
Vaðölduver
Vaðölduver er fyrsta vindorkuver landsins. Stefnt er á að þar verði 28 vindmyllur komnar í fullan rekstur fyrir lok árs 2027.
Í vaktinni hér fyrir neðan getur þú séð nýjustu fréttir um verkefnið. Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að á vefnum getur þú sent okkur fyrirspurn.
Fréttavakt Vaðölduvers
Velkomin á vaktina! Hér fyrir neðan getur þú nálgast allar nýjustu fréttir og tilkynningar um stöðu mála og framvindu verkefnisins.
Spennirinn kominn í Vaðölduver
Skipið EENDRACHT kom til Þorlákshafnar miðvikudaginn 8. júlí með spenni og fylgibúnað fyrir safnstöð Vaðölduvers. Spennirinn var kominn á land um kl. 12 á fimmtudag.
Flutningur frá Þorlákshöfn hófst eftir miðnætti aðfararnótt föstudagsins 10. júlí og var spennirinn kominn í Vaðölduver um kl. 9 sama morgun. Flutningurinn gekk vel, enda hafði undirbúningur verið góður og þétt samstarf milli Landsvirkjunar, ET þungaflutninga, Vegagerðarinnar, lögreglu og fleiri aðila.

Takk fyrir komuna í Vaðölduver!
Gestkvæmt var á útsýnis- og áningarstaðnum okkar við Vaðölduver um helgina. Starfsfólk Landsvirkjunar tók þar á móti áhugasömu fólki sem vildi fræðast um fyrsta vindmylluver landsins og þar eru einnig skilti með upplýsingum um vindmyllur og starfsemi okkar á svæðinu.

Gestir þáðu kaffi, djús og kleinur og virtu fyrir sér þær 6 vindmyllur sem þegar eru risnar. Alls verða vindmyllur í Vaðölduveri 28. Í sumar rís helmingur þeirra og hinar 14 rísa næsta sumar.
Spennir fyrir Vaðölduver lagður af stað til Íslands
Spennir fyrir safnstöð Vaðölduvers er nú lagður af stað til Íslands. Skipið lagði úr höfn í Porto í Portúgal laugardaginn 4. júlí og þar með hófst sjóflutningur spennisins til landsins.
Þegar spennirinn kemur til Íslands tekur við sérhæfður landflutningur að framkvæmdasvæðinu, líkt og á við um aðrar stórar einingar sem tengjast uppbyggingu vindorkuversins. Slíkir flutningar eru vandlega undirbúnir og fara fram í samráði við flutningsaðila, Vegagerðina, lögreglu og aðra hlutaðeigandi aðila.
Flutningur spennisins er hluti af umfangsmikilli aðfangakeðju verkefnisins, þar sem stórar og þungar einingar eru fluttar sjóleiðis til Íslands og þaðan áfram á framkvæmdasvæðið við Vaðöldu.
Búist er við því að skipið komi til landsins að kvöldi miðvikudagsins 8. júlí en áætlunin getur þó tekið breytingum eftir veðri, aðstæðum á sjó og í höfnum.
Nýr áningar- og útsýnisstaður opnaður
Nýr útsýnis- og áningarstaður við Vaðölduver verður opnaður föstudaginn 3. júlí. Frá honum er gott útsýni yfir framkvæmdasvæðið auk þess sem þar eru skilti með fróðleik um vindorku og Vaðölduver.
Starfsfólk Landsvirkjunar ætlar að vera á staðnum kl. 11-15 dagana 3.-5. júlí, taka á móti gestum og svara spurningum um framkvæmdir og næstu skref í Vaðölduveri. Öll hjartanlega velkomin!

Strenglagnir komnar vel á veg
Vinna við strenglagnir í Vaðölduveri gengur áfram samhliða öðrum framkvæmdum á svæðinu. Strengir eru komnir inn í safnstöð og RST Net hefur fengið aðgang að rafbúnaðarrými, þar sem undirbúningsvinna vegna stöðvarveitna er hafin.
Strenglagnir eru mikilvægur hluti af innviðum Vaðölduvers, enda tengja þær vindmyllurnar við safnstöðina og þaðan áfram inn í raforkukerfið. Næstu skref snúa meðal annars að frágangi, prófunum og áframhaldandi undirbúningi fyrir spennusetningu.
Vinna við undirstöður vindmylla gengur vel
Framkvæmdir við undirstöður vindmylla í Vaðölduveri miða vel áfram. Nú er búið að steypa 17 undirstöður af þeim 28 sem fyrirhugaðar eru.
Undirstöðurnar eru umfangsmikil mannvirki sem mynda grunninn fyrir vindmyllurnar sjálfar. Þegar steypuvinnu og frágangi lýkur tekur við undirbúningur fyrir uppsetningu turna og annarra eininga. Verkið er unnið í áföngum og í takt við framvindu annarra framkvæmda á svæðinu.
Uppsetningu vindmylla í Vaðölduveri miðar vel áfram
Nú eru tvær vindmyllur fulluppsettar og sú þriðja langt komin, en aðeins vantar einn spaða á hana. Gangi áætlanir dagsins eftir verður hann settur upp á næsta sólahring og þá verða þrjár vindmyllur komnar upp á framkvæmdasvæðinu.
Samhliða er vinna við fjórðu vindmylluna komin vel á veg og er hún um 80% uppsett. Veður ræður miklu um framvinduna, sérstaklega þegar kemur að hífingum, en þegar aðstæður leyfa gengur verkið hratt og vel fyrir sig.
Vindmylla 2 fullreist
Samsetningu annarrar vindmyllunnar í Vaðölduveri er nú lokið, 3. júní 2026. Verkið tók sex daga, en til samanburðar tók tíu daga að setja fyrstu vindmylluna saman að fullu.
Veður hefur verið hagstætt til hífinga á framkvæmdasvæðinu undanfarna daga og hefur það stutt vel við framgang verksins. Uppsetning vindmyllnanna gengur vel.
Fyrsta heila vindmyllan risin í Vaðölduveri
Samsetningu fyrstu heilu vindmyllunnar í Vaðölduveri lauk í dag, 1. júní 2026, og þar með náðist stór áfangi í uppbyggingu vindorkuversins.
Undanfarnar vikur hafa vindmylluhlutar verið fluttir að næturlagi frá Þorlákshöfn að framkvæmdasvæðinu við Vaðöldu. Hver vindmylla er sett saman úr fjölda stórra íhluta, þar á meðal þremur turneiningum, vélarhúsi, nafi, þremur spöðum og stórum einingum rafals.
Vaðölduver er fyrsta vindorkuver landsins. Stefnt er á að þar verði 28 vindmyllur komnar í fullan rekstur fyrir lok árs 2027.

E-Ship 1 komið til Þorlákshafnar
ENERCON E-Ship 1 kom til Þorlákshafnar í morgun með íhluti í fjórar vindmyllur fyrir Vaðölduver. Skipið er sérstaklega hannað til flutninga á stórum vindmylluhlutum og nýtir fjóra Flettner-rótora á þilfari til að aðstoða við siglinguna.
Flutningar á vindmylluhlutum hafa staðið yfir frá byrjun maí og ganga vel. Fyrstu vindmyllurnar eru nú að rísa og gert er ráð fyrir að fyrri fjórtán þeirra fari að vinna raforku inn á flutningskerfið í haust.
Fyrsta vindmyllan rís á framkvæmdasvæðinu
Byrjað var að reisa fyrstu vindmylluna í Vaðölduveri föstudaginn 22. maí 2026. Þar með náðist mikilvægur áfangi í uppbyggingu fyrsta vindorkuvers Landsvirkjunar. Að undanförnu hafa umfangsmiklir flutningar vindmylluhluta farið fram frá Þorlákshöfn í Vaðölduver og nú eru fyrstu hlutar vindmyllunnar komnir upp á framkvæmdasvæðinu. Uppbygging Vaðölduvers verður sífellt sýnilegri með hverjum áfanga.
Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar, var á staðnum á þessum tímamótum og segir í myndbandinu hér fyrir neðan frá undirbúningi verkefnisins, flutningum vindmylluhluta og stöðu framkvæmda á svæðinu.
Vaðölduver er fyrsta vindorkuver landsins. Stefnt er á að þar verði 28 vindmyllur komnar í fullan rekstur fyrir lok árs 2027.
Framkvæmdir ganga vel við safnstöð
Ístak fjallar á vef sínum um góðan áfanga í framkvæmdum við Vaðölduver. Miðvikudaginn 13. maí voru holplötur hífðar á stærsta spennarými safnstöðvarhússins og er þar með komið þak á allt húsið.
Laust starf við rekstur og viðhald Vaðölduvers
Landsvirkjun hefur auglýst nýtt starf vegna Vaðölduvers, fyrsta vindorkuvers Íslands. Leitað er að öflugum einstaklingi til að hafa umsjón með rekstri og viðhaldi innviða versins og taka þátt í að byggja upp þekkingu og verklag í nýjum hluta orkukerfisins.
Starfið snýr meðal annars að uppbyggingu viðhaldsáætlana, ástandseftirliti, viðbrögðum við bilunum og samhæfingu við þjónustuaðila vindmyllanna. Viðkomandi mun jafnframt vinna að auknu rekstraröryggi, endingu búnaðar og hagkvæmni í rekstri. Starfsstöðin verður til að byrja með á framkvæmdasvæði Vaðölduvers en síðar í þjónustuhúsi Landsvirkjunar á Hellu, sem áformað er að opna haustið 2027.
Um er að ræða fullt starf fyrir einstakling með reynslu af viðhaldsstýringu og menntun á sviði verkfræði, tæknifræði, vélstjórnar, rafvirkjunar eða skyldra greina. Umsóknarfrestur er til 26. maí.
Viðhald á Landvegi – Veglokun 12. og 13. maí ef laust verður við næturfrost
Flutningar á búnaði vegna Vaðölduvers hafa farið vel af stað. Um er að ræða umfangsmikla sérflutninga á löngum og þungum einingum sem kalla á góðan undirbúning á flutningsleiðinni svo að flutningar geti farið fram með öruggum hætti.
Til að tryggja öryggi vegfarenda, verja innviði og tryggja greiða og örugga flutninga áfram þarf að ráðast í viðhald á hluta Landvegar. Fyrirhugað er að hefla og klæða um tveggja kílómetra kafla á Landvegi, frá Kelduholti og norður fyrir afleggjara að Holtsmúla, oft nefnt Holtsmúlasund.
Áætlað er að hefja framkvæmdir samhliða lokun vegkaflans þriðjudaginn 12. maí og miðvikudaginn 13. maí. Áætlunin er háð veðri og aðstæðum og gengur aðeins eftir ef laust verður við næturfrost, enda þarf slíkar aðstæður til að klæðningarvinna geti farið fram með fullnægjandi hætti.
Staðan verður tekin að morgni 12. maí og þá metið hvort farið verði í tveggja daga áætlunina. Tilkynnt verður sérstaklega hvort framkvæmdum verði frestað.
Ef af framkvæmdum verður er lokunin miðuð við tímabilið frá kl. 07:30 til 18:00/20:00 báða dagana. Kaflinn verður tekinn í tveimur hlutum og gert er ráð fyrir að vegurinn verði opnaður bæði kvöldin þannig að sérflutningar Bergen Spesial vegna Vaðölduvers geti farið um leiðina samkvæmt áætlun.
Á meðan klæðningarvinna stendur yfir verður vegurinn lokaður fyrir almennri umferð. Hjáleið verður um Bjallaveg og Árbæjarveg. Íbúum sem búa innan lokunarpósta verður að sjálfsögðu hleypt til og frá heimili í samráði við verktakann. Framkvæmdaraðili verður Þjótandi ehf. og ber fyrirtækið ábyrgð á vinnusvæðamerkingum.
Markmið viðhaldsins er að auka umferðaröryggi, verja innviði og tryggja að flutningar geti haldið áfram með skipulögðum og öruggum hætti, með sem minnstri röskun fyrir íbúa og aðra vegfarendur.
Fjallað um fyrstu flutningana í kvöldfréttum sjónvarps RÚV
Sjónvarp RÚV fjallaði um fyrstu flutninga vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, sem fóru fram aðfaranótt 7. maí. Í fréttinni var tekið viðtal við Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóra Vaðölduvers, skömmu áður en fyrsti flutningurinn lagði af stað af hafnarsvæðinu í Þorlákshöfn.
Í umfjöllun RÚV var stemningin á vettvangi einnig fönguð með myndefni, bæði á hafnarsvæðinu og á leiðinni frá Þorlákshöfn í átt að Vaðöldu.

Rætt um fyrstu flutningana í morgunfréttum RÚV
Gunnar Aron Ólason, upplýsingafulltrúi nýframkvæmda hjá Landsvirkjun, fór í viðtal í morgunfréttum RÚV klukkan átta að morgni fimmtudagsins 7. maí vegna fyrstu flutninga vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, sem fram fóru nóttina áður.
Í viðtalinu sagði Gunnar frá því hvernig fyrsti flutningurinn gekk, en flutningslestin lagði af stað frá Þorlákshöfn skömmu eftir miðnætti og var komin að Vaðöldu fyrir klukkan fimm um morguninn.
Gunnar fór einnig yfir það sem fram undan er, en næstu vikur verða reglulegir næturflutningar með íhluti fyrir Vaðölduver. Flutningarnir eru umfangsmiklir og byggja á víðtæku samstarfi Landsvirkjunar, lögreglu, Vegagerðarinnar, flutningsaðila og annarra sem koma að verkefninu.
Fyrstu flutningar fóru fram í nótt
Fyrstu flutningar vindmylluhluta fyrir Vaðölduver hófust aðfaranótt 7. maí og gengu samkvæmt áætlun. Lagt var af stað frá Þorlákshöfn skömmu eftir miðnætti og var flutningslestin komin á áfangastað fyrir klukkan fimm um morguninn.
Í fyrstu ferðinni voru fluttir tveir spaðar, turnhluti, miðhluti rafala, tveir hliðarhlutar rafala og tveir gámar með fylgibúnaði. Afferming fór fram við Vaðölduver í morgun.
Flutningarnir eru umfangsmiklir og krefjast nákvæms undirbúnings. Þeir voru unnir í góðu samstarfi við lögreglu, Vegagerðina, flutningsaðila og aðra hagaðila sem koma að verkefninu. Umferð gekk greiðlega, öryggi var í fyrirrúmi og allar áætlanir stóðust.
Næsti flutningur fer fram aðfararnótt 8. maí og fram undan eru flutningar sex nætur vikunnar næstu 7–9 vikur.

Fyrsta skóflustunga að nýju þjónustuhúsi Landsvirkjunar á Hellu
Fyrsta skóflustunga að nýju þjónustuhúsi Landsvirkjunar á Hellu var tekin 6. maí. Húsið mun þjóna starfsemi tengdri Vaðölduveri, fyrsta vindorkuveri Íslands, og verður aðstaða þar fyrir starfsfólk Landsvirkjunar og Enercon, framleiðanda vindmyllanna.
Í húsinu verða jafnframt verkstæði og geymslur fyrir varahluti í vindmyllurnar 28 sem rísa í Vaðölduveri. Enercon hefur þegar ráðið íslenskt starfsfólk til að sinna viðhaldi vindmyllanna og hefur starfsfólkið hlotið sérhæfða þjálfun víða um Evrópu.
Þjónustuhúsið verður Svansvottað og er gert ráð fyrir að það verði tilbúið haustið 2027, þegar Vaðölduver verður komið í fullan rekstur. Heildarkostnaður framkvæmdarinnar er áætlaður um hálfur milljarður króna.

Viðskiptablaðið um þjónustuhús á Hellu
Viðskiptablaðið fjallaði um fyrirhugaða skóflustunguathöfn vegna nýs þjónustuhúss á Hellu. Þjónustuhúsið rís á lóð sem Landsvirkjun fékk úthlutað við Faxaflatir 2a. Verktakafyrirtækið Alefli bauð lægst í verkið en heildarkostnaður er áætlaður um hálfur milljarður króna. Gert er ráð fyrir að húsið verði risið haustið 2027, þegar Vaðölduver verður komið í fullan rekstur.
Viðtal við Sigurgeir Björn í Reykjavík síðdegis
Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri Vaðölduvers, ræddi umfang flutninganna, undirbúninginn og helstu áskoranir í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni 4. maí. Þar fór hann yfir hvernig flutningarnir eru skipulagðir, hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar á leiðinni og hversu víðtækt samstarf þarf til að koma svo stórum einingum örugglega frá Þorlákshöfn að Vaðöldu.

Þriðja skipið með íhluti í Vaðölduver komið til landsins
Þriðja skipið með íhluti í vindmyllur Vaðölduvers kom til Þorlákshafnar að kvöldi sunnudags 3. maí 2026. Skipið heitir IDUNN og með því komu íhlutir í eina og hálfa vindmyllu eins og í fyrstu tveimur skipunum. Skipið verður affermt 4. maí.
Tilraunaakstur vegna þungaflutninga í Vaðölduver
Landsvirkjun vekur athygli á því að í kvöld, laugardaginn 2. maí, er áætlaður æfingaakstur án farms vegna fyrirhugaðra flutninga á vindmyllum frá Þorlákshöfn í Ölfusi að Vaðöldu í Rangárþingi ytra. Gert er ráð fyrir að lagt verði af stað frá Þorlákshöfn upp úr kl. 20:00 og að ferðin taki rúmlega fjórar klukkustundir. Ekið verður eftir fyrirhugaðri flutningsleið. Æfingaaksturinn er liður í undirbúningi fyrir raunverulega flutninga á vindmylluhlutum og er framkvæmdur til að gæta fyllsta öryggis, yfirfara verklag og tryggja að allt gangi eins vel fyrir sig og kostur er þegar flutningar hefjast.
Íbúar og vegfarendur á áhrifasvæði flutningsleiðarinnar kunna að verða varir við aksturinn. Við biðjum fólk um að sýna aðgát í nágrenni flutningslestarinnar og virða leiðbeiningar þeirra sem stýra umferð á vettvangi.
Nánari upplýsingar um flutningana má finna á www.landsvirkjun.is/flutningar
Skip númer tvö með vindmylluhluta komið til Þorlákshafnar
Annað skipið með vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, Onego Rio, kom til Þorlákshafnar í hádeginu mánudaginn 27. apríl. Um er að ræða aðra sendingu vindmylluhluta til verkefnisins.
Stefnt er að því að hefja affermingu á þriðjudagsmorgun 28. apríl, með svipuðu fyrirkomulagi og við komu fyrsta skipsins.
Komu fyrstu vindmylluhlutanna gerð skil í myndbandi
Nýtt myndband hefur verið birt um komu fyrstu vindmylluhlutanna fyrir Vaðölduver til Þorlákshafnar. Þar sést meðal annars þegar fyrsta skipið kemur til hafnar, afferming fer fram og fyrsti vindmylluspaðinn er settur á bíl til áframhaldandi flutnings.
Morgunblaðið fjallar um komu fyrstu vindmylluhlutanna
Morgunblaðið fjallaði 21. apríl um komu fyrstu vindmylluhlutanna til landsins fyrir Vaðölduver. Í fréttinni er rætt við Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóra Vaðölduvers, og meðal annars fjallað um undirbúning flutninganna og sérhæfðan búnað sem þarf til verksins.
Fyrsta skipið komið til Þorlákshafnar
Fyrsta skipið með vindmylluhluta fyrir Vaðölduver kom til Þorlákshafnar 20. apríl miðdegis. Skipið, sem heitir Iðunn, siglir undir hollenskum fána og kom frá Rotterdam. Um borð eru íhlutir fyrir eina og hálfa vindmyllu. Áætlað er að afferma skipið 21. apríl og geyma íhlutina á hafnarsvæðinu þar til þeir verða fluttir upp í Vaðölduver. Fyrsti flutningur er áætlaður aðfararnótt 7. maí.

Landsvirkjun á Vaðölduver
Landsvirkjun verður eigandi og rekstraraðili Vaðölduvers. Enercon sér um viðhald og ráðgjöf samkvæmt þjónustusamningi, en hefur hvorki eignaraðild né hlutdeild í arði verkefnisins.
Landsvirkjun á Vaðölduver
Landsvirkjun mun eiga og reka allar vindmyllur í Vaðölduveri og fá allan arð af rekstrinum. Enercon sinnir viðhaldi og ráðgjöf á grundvelli þjónustusamnings.

Framkvæmdir á Votmúlavegi og Landvegi
Frá og með fimmtudeginum 9. apríl hefjast framkvæmdir á tveimur köflum á flutningsleið Vaðölduvers. Annars vegar er um að ræða viðhaldsframkvæmdir á um 800 metra kafla austast á Votmúlavegi, þar sem veginum verður lokað fyrir almenna umferð á meðan framkvæmdum stendur og hjáleið verður um Hólastekk/Suðurhóla. Hins vegar hefjast viðhaldsframkvæmdir á um 2 km kafla á Landvegi, frá Kelduholti og norður fyrir afleggjara að Holtsmúla, þar sem búast má við tímabundnum lokunum og hjáleið um Bjallaveg/Árbæjarveg. Framkvæmdirnar tengjast styrkingu flutningsleiðar fyrir komandi flutninga til Vaðölduvers og eru mikilvægur þáttur í að tryggja öryggi og bæta aðstæður á leiðinni.
Tilkynning á vef sveitarfélagsins Árborgar: Framkvæmdir á Votmúlavegi í apríl 2026 | Lokun frá Gaulverjabæjarvegi að Nýjabæ | Sveitarfélagið Árborg
Tilkynning á vef sveitarfélagsins Rangárþings ytra: Viðhald á Landvegi frá 9. apríl | Rangárþing ytra
Umfjöllun á RÚV eftir undirbúningsfund á Selfossi
Fréttastofa RÚV tók viðtal við Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóra Vaðölduvers, um fyrirhugaða flutninga vindmylluhluta frá Þorlákshöfn að Vaðöldu. Um er að ræða einhverja umfangsmestu þungaflutninga sem ráðist hefur verið í hér á landi, en í vor verða fluttir íhlutir í 14 vindmyllur, alls um 130 kílómetra leið.
Viðtalið fór fram í tengslum við undirbúningsfund á Selfossi, þar sem farið var yfir skipulag flutninganna með þeim aðilum sem koma að verkefninu. Tilgangur fundarins var að samræma verklag, tryggja gott upplýsingaflæði og fara yfir ráðstafanir sem miða að því að flutningarnir gangi greiðlega og örugglega fyrir sig.
Strengir stilltir á Selfossi
Fulltrúar allra þeirra sem koma að fyrirhuguðum flutningum vindmylla í Vaðölduver í vor komu saman á vinnustofu á Hótel Selfossi í gær. Farið var yfir stöðu verkefnisins, öryggi flutningaleiðar, upplýsingagjöf og næstu skref áður en fyrstu flutningar hefjast í byrjun maí.

Þjónustuhús á Hellu í útboð
Landsvirkjun hefur auglýst útboð vegna byggingar þjónustuhúss að Faxaflötum 2a á Hellu. Húsið mun gegna mikilvægu hlutverki sem þjónustumiðstöð fyrir Vaðölduver. Auk starfsfólks frá vindmylluframleiðandanum Enercon mun starfsfólk Landsvirkjunar einnig hafa aðstöðu í húsinu. Byggingaráformin hafa þegar hlotið afgreiðslu hjá byggingarfulltrúa Rangárþings ytra.
Útboðsgögn voru afhent 9. mars 2026 og er skilafrestur tilboða 21. apríl 2026. Heildarstærð aðalbyggingarinnar er um 414 fermetrar en þar verður m.a. að finna skrifstofurými, fundarherbergi, kaffiaðstöðu og bílskúr. Á lóðinni, sem er 9.185 fermetrar að stærð, verður einnig lágreist 46 fermetra skýli sem skiptist í 25 fermetra hjólaskýli og 21 fermetra geymslu. Húsið mun verða Svansvottað og verða þar með annað mannvirki Landsvirkjunar sem hlýtur slíka vottun.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir við byggingu hússins vorið 2026. Mannvirkið er mikilvægur þáttur í uppbyggingu innviða fyrir rekstur Vaðölduvers og mun styðja við daglega þjónustu, samvinnu og aðstöðu starfsfólks sem kemur að verkefninu.

Landvegur opnaður aftur – hámarkshraði skertur um framkvæmdasvæði
Landvegur hefur verið opnaður á ný fyrir umferð frá og með föstudeginum 13. febrúar 2026. Við framkvæmdasvæði brúargerðar er hámarkshraði 30 km/klst og eru ökumenn beðnir um að sýna sérstaka aðgát og virða hraðatakmörkun um svæðið.

Burðarvirki brúar að mótast
Áfram er unnið að brúarsmíði á Landvegi ofan við Ísakot. Nú hefur burðarbitum verið komið fyrir sem tengja saman brúarstólpa og mynda burðarvirki hennar. Þá hafa forsteyptar einingar einnig verið settar upp og er brúin því farin að taka á sig skýra mynd.
Brúargerðin er hluti af vegbótaverkefni Landsvirkjunar í tengslum við fyrirhugaða flutninga á vindmyllum í Vaðölduver næsta sumar.


10 undirstöður steyptar fyrir jól
Fyrir jól var lokið við að steypa 10 undirstöður fyrir vindmyllur í Vaðölduveri. Steypuvinna við fyrstu undirstöðuna hófst 17. september 2025 og markaði það upphaf þessa verkþáttar á framkvæmdasvæðinu.
Veður í vetur hefur almennt verið ágætt miðað við hæð yfir sjávarmáli og það hefur hjálpað til við að skapa betri aðstæður fyrir framkvæmdir á svæðinu, sérstaklega þar sem aðgengi, jarðvegsaðstæður og vinnuaðstæður geta verið viðkvæmar fyrir úrkomu og frosti.

Upplýsingasíða um flutninga í Vaðölduver
Ný upplýsingasíða um flutningana í Vaðölduver er komin í loftið á vef Landsvirkjunar! Þar má m.a. finna almennt yfirlit yfir flutningana, kort af flutningsleið, áætlaðar tímasetningar og vegbætur, ásamt svörum við algengum spurningum.
Tilgangurinn er að tryggja opna, skýra og tímanlega upplýsingagjöf til íbúa, vegfarenda, fyrirtækja og annarra sem gætu orðið fyrir áhrifum af flutningunum.

Umsókn um byggingarheimild fyrir þjónustuhús
Þann 19. nóvember 2025 tók byggingarfulltrúi Rangárþings ytra fyrir umsókn Landsvirkjunar um byggingarleyfi til að byggja 414,7 m² þjónustuhús ásamt 24,4 m² geymslu á Hellu. Byggingaráform voru samþykkt.
Steypuvinna hafin við brú á Landvegi
Verktakar vinna nú hörðum höndum við uppsteypu undirstaðna vegna brúar yfir farveg leysingavatns, nærri Ísakoti á Landvegi. Þrifalag hefur nýlega verið steypt fyrir undirstöður en um 160 rúmmetrar af steypu voru notaðir í þann verkhluta. Á næstu dögum er áformað að steypa sökkla og plötur fyrir sjálfar undirstöðurnar. Brúargerðin er hluti af vegbótaverkefni Landsvirkjunar vegna fyrirhugaðra flutninga á vindmyllum í Vaðölduver næsta vor.

Verkinu miðar vel á Landvegi
Á þessari mynd frá 2. október síðastliðnum má sjá verktakann Borgarverk við lagningu slitlags á Landveg. Verkinu miðar vel en kaflinn sem byggður verður upp er um 13 km. Nú þegar er búið að klæða um 4 km en áætlað er að vegurinn verði tilbúinn fyrir fyrirhugaða flutninga á vindmyllum í Vaðölduver næsta vor.

Strenglögn hefst við Vaðölduver
Nýr áfangi í uppbyggingu Vaðölduvers náðist í dag, mánudaginn 6. október 2025, þegar strenglögn hófst á svæðinu. Fyrsti strengleggurinn var lagður frá safnstöð að vindmyllu T7. Strengir eru almennt lagðir meðfram vegum innan framkvæmdasvæðisins sem auðveldar uppsetningu og tengingar milli safnstöðvar og einstakra mylla. Heildarlengd strengja frá safnstöð að vindmyllum eru um 80 kílómetrar og lengd skurða fyrir strenglagnir eru nálægt 20 kílómetrum.

Undirstaða T12 steypt í dag
Í dag, 30. september 2025, verður undirstaða steypt fyrir vindmyllu T12 í Vaðölduveri. Steypuvinnan er þegar hafin og gengur vinnan nú þegar hraðar fyrir sig en þegar fyrsta undirstaðan var steypt.
Fyrsta undirstaðan steypt í Vaðölduveri
Í gær var stigið mikilvægt skref í uppbyggingu Vaðölduvers þegar ÍSTAK steypti fyrstu undirstöðu af alls 28 sem reistar verða á svæðinu. Þetta markar næsta skref framkvæmda við grunninn að vindmyllunum sem munu framleiða græna orku til framtíðar.

RST Net sér Vaðölduveri fyrir rafbúnaði
Landsvirkjun hefur samið við RST Net ehf. um hönnun, innkaup, framleiðslu og uppsetningu á rafbúnaði í safnstöð á framkvæmdasvæði fyrirhugaðs vindorkuvers við Vaðöldu. Samningurinn nemur rúmum 450 milljónum króna og var tilboð RST Net metið hagstæðast af fjórum sem bárust.

Tímamót í Vaðölduveri
Ákveðin tímamót urðu við framkvæmdir í Vaðölduveri í vikunni þegar Ístak steypti svokallað þrifalag vegna fyrstu undirstöðunnar af þeim 28 sem byggðar verða fyrir vindmyllurnar. Um 11-14 þúsund rúmmetra af steypu þarf í þær allar.
Framkvæmdir við Vaðölduver ganga vel og von er á fyrstu vindmyllunum til landsins í vor.
Morgunblaðið fjallaði um málið eftir að Árni Sæberg, ljósmyndari blaðsins, átti leið um svæðið í vikunni.

Þarfar endurbætur á Landvegi
Landsvirkjun hefur samið við Borgarverk um að byggja upp Landveg á 13 km kafla í Rangárþingi ytra. Veghlutann þarf að styrkja sérstaklega fyrir flutning efnis og búnaðar fyrir Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins. Borgarverk átti lægsta tilboð í verkið, tæpar 760 milljónir kr. Framkvæmdir eru nú þegar hafnar og á þeim að vera að fullu lokið í október 2025.
Ístak leggur grunn að Vaðölduveri
Landsvirkjun hefur samið við Ístak hf. um ýmis mannvirki fyrir Vaðölduver, þar sem fyrsta vindorkuver landsins rís. Upphæð samningsins nemur rúmum 6,8 milljörðum króna. Reiknað er með að Ístak hefjist handa núna í maí og að verkinu ljúki sumarið 2027.

Búrfellslundur = Vaðölduver
Við vorum rétt í þessu að birta frétt um að vindorkuverið, sem hingað til hefur gengið undir vinnuheitinu Búrfellslundur, mun hér eftir bera heitið Vaðölduver.
Eftir að staðsetningu vindorkuversins var breytt og umfang þess minnkað teljum við ekki rétt að kenna það við Búrfell, enda er það fjall töluvert sunnar. Staðið hefur til um allnokkurn tíma að kenna vindorkuverið við Vaðöldu sem er fell nærri framkvæmdasvæðinu, en þar sem það var þekkt í öllu leyfisveitingaferlinu sem Búrfellslundur var ákveðið að hrófla ekki við nafninu fyrr.
Virkjunarleyfið stendur
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu um að ógilda ákvörðun Orkustofnunar um að veita Landsvirkjun virkjunarleyfi vegna Búrfellslundar.
Orkustofnun veitti virkjunarleyfið í ágúst á síðasta ári, en í september kærðu samtökin Náttúrugrið þá ákvörðun og kröfðust þess að hún yrði felld úr gildi. Í niðurstöðum sínum segir meirihluti úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að ekki yrði séð að neinir þeir annmarkar lægju fyrir sem raskað gætu gildi ákvörðunar Orkustofnunar.
Vindmyllurnar verða frá Enercon
Landsvirkjun hefur samið við þýska vindmylluframleiðandann Enercon um kaup, uppsetningu og rekstur á 28 vindmyllum sem settar verða upp í Búrfellslundi við Vaðöldu.

Yfirgripsmikil grein um framkvæmdaverkefni
Það er óhætt að mæla með lestri greinarinnar hér fyrir neðan. Hún birtist í fjölmiðlum í vikunni, en í henni er farið yfir allar framkvæmdir sem framundan eru hjá okkur á Suðurlandi.
Þar kemur meðal annars fram að þegar mest verður að gera í Búrfellslundi, Hvammsvirkjun og Sigöldu verða 650 manns á verkstað!
Ærin verkefni næstu ár
Grein eftir Ásbjörgu Kristinsdóttur, framkvæmdastjóra Framkvæmda hjá Landsvirkjun, um þau viðamiklu verkefni sem framundan eru á Suðurlandi.

Framkvæmdir hafnar við Búrfellslund
Framkvæmdir eru hafnar við fyrsta vindorkuver landsins. Búrfellslundur eða Vaðölduver verður á 17 ferkílómetra svæði í kringum Vaðöldu í Rangárþingi ytra. Fulltrúar sveitarfélagsins, Borgarverks, verkfræðistofunnar COWI og Landsvirkjunar fögnuðu þessum áfanga í gær.

Kæru á virkjunarleyfi vísað frá og stöðvunarkröfu hafnað
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði í gær frá kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps á virkjunarleyfi Búrfellslundar. Jafnframt hefur kröfu Náttúrugriða um stöðvun framkvæmda við Búrfellslund verið hafnað.
Rangárþing ytra veitir leyfi til framkvæmda
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag að veita Landsvirkjun leyfi til framkvæmda vegna vindorkuvers við Vaðöldu. Um er að ræða leyfi vegna vegagerðar innan framkvæmdasvæðis annars vegar og leyfi til uppsetningar vinnubúða hins vegar.
Sveitarstjórnin tók framkvæmdaleyfisumsókn Landsvirkjunar fyrir á fundinum og fól skipulags- og umferðarnefnd, ásamt umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd Rangárþings ytra, að vinna áfram að afgreiðslu umsóknarinnar.
Ítarleg grein um undirbúning vindorkuvers
Undirbúningur að byggingu Búrfellslundar, vindorkuvers Landsvirkjunar við Vaðöldu, hefur staðið á annan áratug. Hörður Arnarson, forstjóri, hefur ritað yfirgripsmikla grein um málið sem birtist á vefnum okkar í dag - sjá hér fyrir neðan.
Vandaður aðdragandi vindorkuvers
Undirbúningur að byggingu Búrfellslundar, vindorkuvers Landsvirkjunar við Vaðöldu, hefur staðið á annan áratug. Hörður Arnarson, forstjóri, skrifar.

Samið um lands- og vindorkuréttindi
Forstjóri Landsvirkjunar undirritaði í dag samning við íslenska ríkið um lands- og vindorkuréttindi vegna Búrfellslundar.

Virkjunarleyfi komið í hús!
Orkustofnun afgreiddi í dag virkjunarleyfi fyrir vindorkuverið Búrfellslund við Vaðöldu. Landsvirkjun mun í kjölfarið sækja um framkvæmdaleyfi til sveitarstjórnar Rangárþings ytra.
Samið við Landsnet um flutning raforku
Við höfum samið við Landsnet um að tengja vindorkuverið í Búrfellslundi inn á raforkuflutningskerfið.
Fyrstu skrefin tekin
Við höfum tekið fyrstu skrefin að framkvæmdum við vindorkuverið okkar sem gengið hefur undir heitinu Búrfellslundur.
Í vindorkuverinu sem rís við Vaðöldu verða tæplega 30 vindmyllur á 18 ferkílómetra svæði og vonir standa til að spaðar þessa fyrsta vindorkuvers landsins verði farnir að snúast í lok árs 2026.

Jarðlög rannsökuð
Í sumar verða ýmsar jarðtæknirannsóknir á svæðinu. Rannsaka þarf jarðlög undir fyrirhuguðum vindmyllum, byggingum og vegi. Rannsóknarsvæðið er allt umhverfis Vaðöldu, neðan Sultartangastíflu og norðan vegar F26, innan Rangárþings ytra.
Í rannsóknunum felst m.a. að bora hátt í 30 m kjarnaboranir, en einnig eru grafnar gryfjur í laus jarðlög við hvert vindmyllustæði. Þá verða 12-15 m loftboranir í vegstæði að fyrirhuguðum vindmyllum og í næsta nágrenni fyrirhugaðra mannvirkja, auk þess sem boraðar verða tvær vatnstökuholur innan svæðisins.
Niðurstöður rannsóknanna veita mikilvægar upplýsingar sem nýtast í hönnun mannvirkja. Áætluð verklok eru í september.
Verkís verður ráðgjafi fyrir Búrfellslund
Verkís varð hlutskarpast í útboði sem fór fram í febrúar og höfum við því tekið tilboði fyrirtækisins, sem það gerði í samvinnu við Rambøll í Danmörku.

Útboð á vindmyllum
Við höfum ákveðið að auglýsa útboð á vindmyllum fyrir vindorkuver við Vaðöldu sem ber vinnuheitið Búrfellslundur. Verkefnið er boðið út með fyrirvara um leyfis- og skipulagsmál.
Fróðleg grein um fyrirhugaðan vindlund
Hér fyrir neðan er hægt að lesa ítarlega grein um vindorkuverið sem við hyggjumst reisa við Vaðöldu. Mælum með lesningu!
Vindorka við Vaðöldu
Grein eftir Einar Mathiesen, framkvæmdastjóra Vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun.

Sótt um virkjunarleyfi vegna Búrfellslundar
Landsvirkjun hefur sótt um virkjunarleyfi til Orkustofnunar vegna fyrirhugaðs Búrfellslundar. Uppsett afl lundarins er 120 MW og mun hann nýta mannvirki og aðra innviði sem fyrir eru á stærsta orkuvinnslusvæði fyrirtækisins, Þjórsár- og Tungnaársvæðinu.
