Vinnustaðurinn

Við hjá Landsvirkjun búum vel að starfsfólki og tryggjum því sveigjanleika til að ná jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið að heilsutengdum forvörnum, öryggi og vinnuvernd.

Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Farsæld í fyrirrúmi

Starfsfólki okkar á að líða vel í vinnunni. Það tryggjum við meðal annars með framúrskarandi aðstöðu, sveigjanleika, fræðslumöguleikum og skemmtilegum viðburðum. Þegar allt kemur til alls eru vinnustaðir fyrst og fremst starfsfólkið sem þar starfar. Með góðri liðsheild og menningu náum við raunverulegum árangri.

Sveigjanleiki

Sveigjanlegur vinnutími skapar jafnvægi milli vinnu og einkalífs!

Félagslíf

Öflugt starfsmannafélag og fjöldi skemmtilegra viðburða!

Fræðsla

Fjölbreytt námskeið og endurmenntun!

Mötuneyti

Frábær mötuneyti, hollur matur og alltaf heitt á könnunni!

Samgöngur

Samgöngustyrkir og ýmsir ferðamátar í boði!

Líkamsrækt

Líkamsræktarstyrkir og góð heilsuræktaraðstaða!

Sjálfsrækt

Fræðsla og stuðningur til sjálfsræktar!

„Landsvirkjun er traustur vinnustaður með öflugri liðsheild, þar fæ ég að takast á við krefjandi og áhugaverð verkefni á hverjum degi“

Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir

Forstöðumaður viðskiptastýringar

Af hverju að velja Landsvirkjun?

Þegar þú vinnur hjá Landsvirkjun ert þú hluti af metnaðarfullu og kraftmiklu teymi sem vill fyrst og fremst gera heiminn betri í dag en í gær.

Við leggjum ríka áherslu á þekkingu, jafnrétti og gott starfsumhverfi þar sem traust og samvinna eru í forgrunni.

Við erum tæknidrifinn vinnustaður í stöðugri þróun. Við vinnum að því að hámarka afköst með sjálfbærni að leiðarljósi – og höfum metnað til að vera í fararbroddi allra orkufyrirtækja í heiminum.

Fylgdu okkur!

Við erum dugleg að miðla skemmtilegu og fjölbreyttu efni á samfélagsmiðlunum okkar. Við mælum með að þú fylgir okkur - smelltu á tenglana hér fyrir neðan til að skoða!

„Það er hvetjandi að vinna að verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif“

Benedikt Orri Pétursson

Rekstur og viðhald í Kröflustöð

Mannauður í tölum

Staðan í árslok 2025. Tölurnar eiga við fastráðið starfsfólk.

  • Stöðugildi

    0
  • Nýráðningar 2025

    0
  • Meðalaldur

    0ár
  • Starfsmannavelta

    0%
  • Veikindahlutfall

    0%
  • Algengasta stjörnumerkið

    0hrútar

Spennandi störf í boði

Störfin hjá okkur í Landsvirkjun eru fjölbreytt og spennandi.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og vaxa í starfi og vinna að verkefnum sem það hefur ástríðu fyrir. Ekki hika við að sækja um hjá okkur ef þú sérð starf sem vekur áhuga þinn!