Vinsamlega kynnið ykkur eftirfarandi skilmála áður en beiðni um heimsókn á framkvæmdasvæði Landsvirkjunar er send inn. Með því að senda inn beiðni staðfestir umsækjandi að hafa lesið og samþykkt skilmálana.
Skilmálar
Landsvirkjun áskilur sér rétt til að hafna beiðnum um heimsókn eða breytingu á dagsetningu án frekari skýringa, ef óhentugt er að taka á móti hóp á þeim degi sem sótt er um eða ef aðstæður gera móttöku óörugga eða ómögulega. Móttaka hópa ræðst m.a. af aðstæðum hverju sinni og því að nægur öryggisbúnaður sé tiltækur.
Tegundir hópa sem tekið er á móti: Nærsamfélagshópar, fræðsluhópar, opinberir aðilar, viðskiptavinir og samstarfsaðilar.
Öryggi á framkvæmdasvæðum hefur ávallt forgang. Gestir skulu ávallt fylgja leiðsögn og fyrirmælum starfsfólks og nota þann öryggisbúnað sem þeim er úthlutað.
Óheimilt er að vera undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna á framkvæmdasvæði. Starfsfólki er heimilt að vísa einstaklingum eða hópum frá ef grunur leikur á slíku ástandi.
Ýmsir þættir, svo sem veðurfar, aðkoma að framkvæmdasvæðinu og veikindi starfsfólks, geta haft áhrif á hvort og hvernig heimsókn er skipulögð. Heimsókn getur því verið frestað eða hún felld niður með skömmum fyrirvara.
Hópstjóri ber ábyrgð á að upplýsa alla þátttakendur um framangreinda skilmála fyrir komu, öryggiskröfur, fatnað og skófatnað sem hentar aðstæðum, sem og aðrar leiðbeiningar sem fram koma í staðfestingu heimsóknar.
Með innsendingu beiðni samþykkir umsækjandi að þessir skilmálar gildi um fyrirhugaða heimsókn á framkvæmdasvæði.