Öryggis- og umhverfisþjálfun

Öryggis- og umhverfisþjálfun Landsvirkjunar er rafræn grunnfræðsla sem starfsfólk verktaka þarf að ljúka áður en vinna hefst á starfssvæðum Landsvirkjunar.

Virk og öflug öryggismenning

Markmiðið með öryggis- og umhverfisþjálfuninni er að styðja öfluga og virka öryggismenningu hjá starfsfólki verktaka í rekstri og verkefnum á starfssvæðum Landsvirkjunar.

Þjálfunin stuðlar að sameiginlegum skilningi á kröfum, áherslum og væntingum Landsvirkjunar í öryggis- og umhverfismálum. Hún eykur vitund um áhættuþætti og styrkir forvarnir í daglegum störfum.

Spurt og svarað

  • Þjálfunin skiptist í tvo hluta:

    1. ÖHU-grunnnámskeið SSG (tekur um 2 klst)
      Grunnþjálfun sem er unnin í samstarfi við SSG (Standard Solution Group) og umboðsaðila þess á Íslandi, HSE Consulting. Námskeiðið heitir „SSG Iceland Safety Course“. Það er almennt námskeið í öryggis- og umhverfismálum og er sameiginlegt fyrir íslensk fyrirtæki sem nýta fræðslu SSG.
    2. Sértækt ÖHU-námskeið Landsvirkjunar (tekur um 1 klst)
      Sértækt námskeið sem er þróað með hliðsjón af starfsemi Landsvirkjunar á aflstöðvum og framkvæmdasvæðum.
  • Gildistími námskeiðanna er 3 ár. Að þeim tíma loknum þarf að taka námskeiðin aftur til að endurnýja leyfi til starfa.

    • Grunnnámskeið SSG, SSG Iceland Safety Course, er aðgengilegt á 8 tungumálum.
    • Sértækt ÖHU-námskeið Landsvirkjunar er aðgengilegt á íslensku og ensku.
    • Gjaldskrá vegna ÖHU-grunnnámskeiðs SSG er aðgengileg hjá HSE Consulting.
    • Ekki þarf að greiða þátttökugjald fyrir sértækt ÖHU-námskeið Landsvirkjunar.
  • Hafi starfsfólk lokið sambærilegu ÖHU-grunnnámskeiði á undangengnum þremur árum getur verktaki óskað eftir að það námskeið verði metið til jafns við ÖHU-grunnnámskeið SSG.

    Beiðni um mat þarf að fylgja fullnægjandi upplýsingar um efni og gæði námskeiðsins svo Landsvirkjun geti lagt faglegt mat á gildi þess.

  • Nei. Rafræna ÖHU-þjálfunin er grunnfræðsla og kemur ekki í stað sérhæfðrar þjálfunar vegna einstakra verka, búnaðar eða starfa.

    Verktaki ber alltaf ábyrgð á að tryggja að starfsfólk og undirverktakar hafi öll nauðsynleg réttindi, færni og viðeigandi sértæka ÖHU-þjálfun áður en vinna hefst.