Átökin í Mið-Austurlöndum
Átökin í Mið-Austurlöndum hafa haft víðtæk áhrif, langt fyrir utan átakasvæðið sjálft. Mikil orkuvinnsla er á svæðinu og í eðlilegu árferði er olía og gas flutt um Hormússund. Sundið hefur hins vegar að mestu verið lokað frá því að átökin hófust. Þetta hefur sett olíu- og gasmarkaði í uppnám og áhrifin hafa m.a. komið fram í hærri húshitunarkostnaði og raforkuverði í Evrópu. Áhrifin eru mismunandi milli landsvæða eftir því hversu háðar þjóðir eru gasi til hitunar og raforkuvinnslu. Þau birtast með takmörkuðum hætti á Íslandi vegna nýtingar jarðvarma og 100% endurnýjanlegs raforkukerfis.

Jónas Hlynur Hallgrímsson, forstöðumaður og Egill Tómasson, sérfræðingur hjá Viðskiptagreiningu og Þróun markaða röktu áhrif nýliðinna atburða á bæði Evrópu og Ísland.
Átökin og það alvarlega ástand sem þeim fylgir hefur vakið miklar umræður um gas- og raforkumarkaðinn í Evrópu, sem og ETS kerfið. Leiðtogar Evrópu hafa lagt til ýmsar aðgerðir til að bregðast við vandanum.