Ávarp forstjóra

Hagkvæm orkuöflun er forsenda samkeppnishæfni

Lesa ársskýrslu 2025 (PDF)

Rekstur Landsvirkjunar gekk vel á árinu 2025, þrátt fyrir krefjandi aðstæður og sveiflur í ytra umhverfi. Afkoman var traust og endurspeglar sterkan grunnrekstur og góða fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Sú staða skiptir miklu máli á tímum þegar brýn þörf er á skýrum ákvörðunum um næstu skref í orkuöflun fyrir íslenskt samfélag.

Fjárhagslegur styrkur Landsvirkjunar veitir fyrirtækinu bolmagn til að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir og sinna hlutverki sínu af ábyrgð; gagnvart eigandanum, íslensku þjóðinni, jafnt sem atvinnulífi og heimilum um land allt.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar

Hlutverk Landsvirkjunar er að hámarka verðmæti þeirra endurnýjanlegu orkulinda sem fyrirtækinu er trúað fyrir, með sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi. Til að tryggja áframhaldandi samkeppnishæfni Íslands og þar með lífskjör í landinu skiptir máli að velja arðsama virkjunarkosti og nýta þá innviði sem þegar eru fyrir hendi. Samkeppnishæfur flutningskostnaður raforku er þar lykilatriði. Í einangruðu orkukerfi eru hagkvæm orkuöflun og skilvirkt flutningskerfi grunnforsendur verðmætasköpunar og stöðugs raforkuverðs.

Ábyrg nýting auðlinda snýst ekki aðeins um tæknilegar og fjárhagslegar ákvarðanir, heldur einnig um samskipti og traust. Landsvirkjun starfar í nánu sambýli við samfélög víða um land og viðhorfskannanir sýna að fyrirtækið nýtur mikils trausts meðal landsmanna. Það traust er dýrmætt og byggir á opnu samtali, vönduðum vinnubrögðum og vilja til að hlusta.

Við stöndum á tímamótum. Ákvarðanir dagsins í dag munu hafa afgerandi áhrif á orkuöryggi, samkeppnishæfni og lífskjör á Íslandi í framtíðinni. Landsvirkjun tekur ekki þær ákvarðanir ein, en við erum reiðubúin til þess að herða róðurinn enn frekar, ef skýrt ákall og umboð kemur frá þar til bærum aðilum.