
Orkueyjan Ísland
Ársskýrsla 2025
Góð afkoma á krefjandi rekstrarári
Rekstur Landsvirkjunar gekk vel á árinu 2025, þrátt fyrir krefjandi aðstæður og nokkra óvissu í rekstrarumhverfi. Áhersla var lögð á öruggan rekstur aflstöðva, viðbrögð við sveiflum í vatnsbúskap og undirbúning framkvæmda sem ætlað er að mæta orkuþörf samfélagsins til framtíðar.
Í ársskýrslunni er farið yfir helstu þætti starfseminnar á árinu, þar á meðal orkuvinnslu og rekstur, raforkumarkaði og orkuöryggi, loftslags- og umhverfismál, vinnustaðinn, framkvæmdir og framtíðarverkefni, sem og samskipti við samfélagið, miðlun og fræðslu.
Nú reynir á ábyrgð og framsýni
2025 markaði tímamót í sögu Landsvirkjunar, enda fagnaði fyrirtækið 60 ára afmæli á árinu. Mikilvægum áföngum var náð í undirbúningi og byggingu nýrra virkjana, en ljóst er að fyrirtækið, jafnt sem stjórnvöld og þjóðin öll, stendur frammi fyrir verkefni sem kallar á skýra framtíðarsýn og ábyrgð.


Hagkvæm orkuöflun er forsenda samkeppnishæfni
Rekstur Landsvirkjunar gekk vel á árinu 2025, þrátt fyrir krefjandi aðstæður og sveiflur í ytra umhverfi. Afkoman var traust og endurspeglar sterkan grunnrekstur og góða fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Sú staða skiptir miklu máli á tímum þegar brýn þörf er á skýrum ákvörðunum um næstu skref í orkuöflun fyrir íslenskt samfélag.


Lykiltölur
Raforkuvinnsla
0TWst5%Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði
$0m5%Forðuð losun vegna raforkuvinnslu
0m. tonn0.1%CO2 -íg
Losun vegna orkuvinnslu á orkueiningu
0g4.6%CO2-íg/kWst
Heildareignir
$0m3%Nettó skuldir
$0m1%
Um fyrirtækið

Upphaf sem markaði þáttaskil
Hörður Arnarson forstjóri og Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri segja sögu Landsvirkjunar samtvinnaða þróun íslensks samfélags.
Þau segja frá því hvað einkennir Landsvirkjun sem fyrirtæki í eigu þjóðarinnar; hlutverki þess í íslensku samfélagi, ábyrgðinni sem fylgir nýtingu endurnýjanlegra auðlinda og þeirri langtímahugsun, fagmennsku og trausti sem eru leiðarljós starfsfólks.

Fagmennska, traust og tækifæri til að vaxa
Landsvirkjun er þekkingarfyrirtæki með skýrt hlutverk og sterka sjálfsmynd. Þar vinnur fólk með mikla sérþekkingu og metnað, í umhverfi þar sem lögð er áhersla á vellíðan, öryggi og jafnvægi.
Sveina Berglind Jónsdóttir mannauðsstjóri lýsir Landsvirkjun sem vinnustað þar sem fólk vinnur saman að krefjandi og skemmtilegum verkefnum, líður vel í starfi og fær svigrúm til að vaxa og þróast.
Orkufyrirtæki í eigu þjóðarinnar
Landsvirkjun í hnotskurn
Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar og vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum; vatnsafli, jarðvarma og vindi. Fyrirtækið vinnur yfir 70% allrar raforku á Íslandi og afhendir hana til iðnaðar, þjónustu og heimila.
Landsvirkjun rekur 14 vatnsaflsstöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur í rannsóknaskyni, á fimm starfssvæðum um land allt. Höfuðstöðvar eru í Reykjavík.
Unnið er að undirbúningi og framkvæmdum við nýjar virkjanir og stækkun núverandi aflstöðva til að mæta vaxandi orkuþörf og styðja við orkuskipti.
Landsvirkjun er sameignarfélag í eigu íslenska ríkisins. Framtíðarsýn fyrirtækisins er sjálfbær heimur, knúinn endurnýjanlegri orku, og hlutverk þess er að hámarka verðmæti þeirra endurnýjanlegu orkulinda sem því er trúað fyrir, með sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi.