Nú reynir á ábyrgð og framsýni
2025 markaði tímamót í sögu Landsvirkjunar, enda fagnaði fyrirtækið 60 ára afmæli á árinu. Mikilvægum áföngum var náð í undirbúningi og byggingu nýrra virkjana, en ljóst er að fyrirtækið, jafnt sem stjórnvöld og þjóðin öll, stendur frammi fyrir verkefni sem kallar á skýra framtíðarsýn og ábyrgð.
Frá stofnun árið 1965 hefur Landsvirkjun gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu íslensks samfélags. Með nýtingu endurnýjanlegra orkuauðlinda hefur verið byggt upp raforkukerfi sem er undirstaða verðmætasköpunar, atvinnulífs og þeirra lífskjara sem við njótum í dag. Raforkan er forsenda nútímasamfélags og skiptir sköpum fyrir öryggi og stöðugleika þjóðarinnar.

Rekstur aflstöðva gekk vel á árinu, þrátt fyrir krefjandi aðstæður og sveiflur í vatnsbúskap. Starfsfólk hefur sýnt í verki að því er treystandi fyrir þeim mikilvægu þjóðhagslegu hagsmunum sem felast í starfsemi orkufyrirtækis þjóðarinnar. Það endurspeglast í ómældu trausti landsmanna samkvæmt viðhorfskönnunum.
Þótt Landsvirkjun standi styrkum fótum blasir við uppbyggingartímabil sem mun reyna á bolmagn fyrirtækisins. Til að mæta brýnum þörfum samfélagsins, knýja orkuskipti og styðja við vöxt atvinnulífs á komandi árum, þarf Landsvirkjun að standa fyrir viðameiri orkuöflun en nokkru sinni áður.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fyrirtækinu er treyst fyrir þjóðhagslega mikilvægu verkefni. Í uppbyggingu raforkukerfisins á undanförnum sex áratugum hefur stuðningur og svigrúm eigandans, íslenska ríkisins, skipt sköpum. Við erum þakklát fyrir það svigrúm og það mun áfram skipta höfuðmáli á því framkvæmdatímabili sem nú er hafið.
Sagan sýnir að framsýnar ákvarðanir í orkumálum hafa skilað þjóðinni miklum ávinningi. Nú er komið að okkar kynslóð að axla ábyrgð á næstu skrefum og tryggja að Landsvirkjun verði áfram burðarás í íslensku samfélagi, til hagsbóta fyrir núverandi og komandi kynslóðir.
