Vaðölduver og viðgerðir á Landvegi

29.10.2025Fréttabréf starfssvæða

Fréttamolar Landsvirkjunar á Þjórsársvæði | Október 2025

Steypuvinna í fullum gangi í Vaðölduveri.
Steypuvinna í fullum gangi í Vaðölduveri.

Vaðölduver og viðgerðir á Landvegi

Meira um Vaðölduver

Framkvæmdir eru í fullum gangi við Vaðölduver, en þar steypir ÍSTAK meðal annars undirstöður fyrir vindmyllurnar, auk þess sem byrjað er að byggja kranastæði og safnstöð. Safnstöðin sér um að taka við rafmagni frá vindmyllunum og flytja það yfir á flutningskerfi Landsnets.

Í Vaðölduveri verða 28 vindmyllur, en fyrri helmingur þeirra verður reistur á næsta ári og seinni helmingur árið 2027. Strax að lokinni uppsetningu hverrar vindmyllu verður hún gangsett, þannig að smátt og smátt mun vinnslan aukast þar til orkuverið verður komið í full afköst haustið 2027.

Unnið við að steypa undirstöðu fyrir vindmyllu í Vaðölduveri.
Unnið við að steypa undirstöðu fyrir vindmyllu í Vaðölduveri.

Á Facebook síðu Landsvirkjunar má sjá myndband af framkvæmdunum. Í hverja undirstöðu fara um 70 tonn af steypustyrktarjárni, um 400 rúmmetrar af steypu og um 14 klukkustundir tekur að láta steypuna renna í undirstöðurnar.

Þá eru framkvæmdir við Landveg í fullum gangi, en þar er verið að endurnýja efstu 14 kílómetrana og leggja bundið slitlag. Gert er ráð fyrir að því verði lokið í vetur.

Hvammsvirkjun og gróðurrannsóknir í Viðey

Meira um Hvammsvirkjun

Áfram er unnið að undirbúningsframkvæmdum í Hvammi, en þar fer fram efnislosun og er því sprengt daglega. Efnið er svo flutt í vinnslu eða á lager eftir því sem við á. Að jafnaði eru um 10-20 manns á svæðinu við vinnu og hátt í 30 tæki.

Tölvugerð mynd af Hvammsvirkjun.
Tölvugerð mynd af Hvammsvirkjun.

Í tengslum við byggingu Hvammsvirkjunar fóru sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar í Viðey í sumar, en eyjan er friðlýst. Þar voru settir upp mælar til að mæla jarðvegsraka og hitastig, tekin jarðvegssýni til efnamælinga og gerðar rannsóknir á gróðurþekju og aldri birkiskógarins í eyjunni. Fylgst verður með eyjunni eftir að virkjunin hefur verið reist og því mikilvægt að hafa grunngögn þegar meta þarf hvort og þá hvaða áhrif virkjunin hafi á hana.

Þjónustuhús Landsvirkjunar á Þjórsársvæði

Landsvirkjun hyggst byggja þjónustuhús fyrir Vaðölduver á Faxaflötum 2a á Hellu. Húsið mun verða Svansvottað og verða þar með annað mannvirki Landsvirkjunar sem hlýtur slíka vottun. Hönnun húss og lóðar er í fullum gangi og gert er ráð fyrir að farið verði í útboð eftir áramót og að hægt verði að hefja framkvæmdir við byggingu hússins vorið 2026.

Þjónustuhús Vaðölduvers sem fyrirhugað er að byggja á Hellu - tölvugerð mynd.
Þjónustuhús Vaðölduvers sem fyrirhugað er að byggja á Hellu - tölvugerð mynd.

Einnig er unnið að stækkun Eiríksbúðar í Búrfelli með viðbyggingu sem hefur hlotið nafnið Múli. Með þessari 995 fermetra stækkun mun vinnuaðstaða starfsfólks í Búrfelli batna til muna, en þar verður sett upp ný stjórnstöð virkjana á Þjórsársvæðinu og skrifstofuaðstaða.

Markmiðið með Svansvottun bygginga er að draga úr umhverfisáhrifum þeirra, sporna gegn hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem nota bygginguna og koma að framkvæmdum við byggingu hennar. Þetta er gert meðal annars með því að mæta kröfum um litla orkunotkun hússins, gæði byggingarefna og byggingavörunotkun.

Stefnt er að því að taka Múla í notkun sumarið 2026.

Viðgerðum í Vatnsfelli lokið

Í byrjun ágúst kom í ljós leki við inntaksmannvirki Vatnsfellsstöðvar og reyndist hann vera vegna sprungu í jarðlögum. Lón stöðvarinnar tæmt og hafist handa við viðgerðir sem fólust í fyllingum í sprungur, viðgerðum á steypukápu inntaksmannvirkis og landmótun.

Frá viðgerðum í Vatnsfellsstöð.
Frá viðgerðum í Vatnsfellsstöð.

Við hönnun og byggingu virkjunarinnar var miðað við að jarðlög á svæðinu væru ekki sterk og atburðir sem þessi gætu átt sér stað. Viðgerðir gengu vel og lauk þeim um miðjan október, en unnið er að því að fylla lónið á ný.

Upplýsingafulltrúi nýframkvæmda hefur störf

Gunnar Aron Ólason hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi nýframkvæmda hjá deild samskipta og upplýsingamiðlunar og tók hann til starfa í lok júlí. Gunnar er búsettur á Hellu ásamt fjölskyldu sinni og hefur starfsstöð að Hvammi í Landsveit.

Gunnar Aron, nýr upplýsingafulltrúi nýframkvæmda.
Gunnar Aron, nýr upplýsingafulltrúi nýframkvæmda.

Í hlutverki sínu ber Gunnar ábyrgð á heildstæðri upplýsingamiðlun og samskiptum vegna nýframkvæmda Landsvirkjunar, m.a. vegna Hvammsvirkjunar, Vaðölduvers, stækkunar Sigöldustöðvar og stækkunar á Þeistareykjum. Hann sér um samskipti við fjölmiðla og hagsmunaaðila ásamt efnisgerð og miðlun á vef- og samfélagsmiðlum. Hægt er að hafa samband við hann með því að senda tölvupóst á netfangið gunnar.aron.olason@landsvirkjun.is.

Nýr starfsmaður nærsamfélags og náttúru

Meira um verkefnastjóra nærsamfélags

Nýlega tók til starfa nýr verkefnastjóri nærsamfélags og náttúru á Suðurlandi, Gústav Magnús Ásbjörnsson. Hann kemur í stað Guðmundar Finnbogasonar sem hvarf til annarra starfa í sumar.

Gústav Magnús Ásbjörnsson, nýr verkefnastjóri nærsamfélags og náttúru.
Gústav Magnús Ásbjörnsson, nýr verkefnastjóri nærsamfélags og náttúru.

Gústav er búsettur á Hellu og mun hafa starfsstöðvar í Búrfelli og í Soginu. Hann er, ásamt Eddu S. Oddsdóttur, tengiliður nærsamfélags aflstöðva í Soginu og á Þjórsársvæði.

Styrkir til góðra verkefna úr Samfélagssjóði

Meira um Samfélagssjóðinn

Ein leiða Landsvirkjunar til að styðja við mannlíf í nágrenni aflstöðva fyrirtækisins er með úthlutun styrkja úr Samfélagssjóði. Sjóðurinn styður við verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun, með áherslu á jákvæð áhrif á nærsamfélög. Búið er að úthluta tvisvar úr sjóðnum á þessu ári og á meðal þess sem styrkt var voru matarmenningarviðburður í Uppsveitum, Töðugjöld í Rangárþingi ytra og útinám í Þjórsárskóla.

Umsóknarfrestur fyrir síðustu úthlutun ársins 2025 er til 30. nóvember og við hvetjum sem flest til að sækja um.

Takk fyrir gott sumar!

Að venju sinnti öflugur hópur ungmenna, sem mörg hver komu nærsamfélaginu, umhirðu umhverfis og ýmsum öðrum verkefnum í og við aflstöðvarnar á Þjórsársvæðinu. Meðal annars tóku þau þátt í gróðursetningu í Landgræðsluskóga við Bjarnalón.

Þá voru sjö háskóla- og iðnnemar við störf í aflstöðvunum. Það er alltaf gaman að fá ungt og hresst fólk til starfa og við þökkum því þeim kærlega fyrir ánægjulega samveru og vel unnin störf.

Nærsamfélag og náttúraVerkefnisstjóri
Gústav Magnús Ásbjörnsson
Nærsamfélag og náttúraVerkefnisstjóri