Spurt og svarað um stækkun Sigöldustöðvar
Hér fyrir neðan má sjá algengar spurningar og svör um stækkun Sigöldustöðvar. Ef þú finnur ekki svar við spurningu eða finnst einhverjar spurningar vanta á síðuna getur þú sent okkur fyrirspurn.
Almennt um stækkunina
Fjórðu vélasamstæðunni verður bætt við núverandi vatnsaflsstöð, ný þrýstipípa og viðbygging við stöðvarhús. Frárennslisskurður er breikkaður á afmörkuðum kafla næst stöð.
Hún eykur afl- og viðbragðsgetu raforkukerfisins, styður afltoppa og styrkir afhendingaröryggi án þess að mynda ný miðlunarlón.
Uppsett afl fer úr 150 MW í um 215 MW. Virkjað rennsli fer úr ~240 m³/s í ~340 m³/s.
Já, lítillega vegna betri nýtni, en meginávinningurinn er aukið sveigjanlegt afl og stöðugleiki í kerfinu.
Vatnsborðshæð og sveiflur í Krókslóni verða sambærilegar og í dag. Sveiflur jafnast neðar í kerfinu.
Nei. Stækkunin nýtir fyrirliggjandi mannvirki og núverandi miðlun.
Framkvæmd og skipulag
Framkvæmdatími er áætlaður um 2,5–3 ár.
Gera má ráð fyrir 1–2 rekstrarstöðvunum (1–3 mánuðir hvor) við afmörkuð verk; á meðan er vatni hleypt um botnrás líkt og við stærra viðhald.
Að jafnaði um 110 manns á verkstað; þegar mest er geta um 140 manns verið í vinnubúðum.
Á tímabundnu svæði á áður röskuðu landi sunnan Tungnaár. Aðstaðan verður fjarlægð og gengið frá svæðinu að verki loknu.
Aðkoma er um núverandi vegi og slóða. Settar verða skýrar merkingar, hraðalækkanir og verklag um einbreiðar brýr og vinnusvæði til að tryggja öryggi.
Umhverfi og samfélag
Áhrif á ásýnd og vatnalíf eru metin óveruleg með mótvægisaðgerðum og reglubundinni vöktun. Rask vegna efnistöku er staðbundið á áður röskuðum svæðum og frágangur fer fram að framkvæmdum loknum.
Áhrif eru tímabundin. Beitt er mótvægisaðgerðum (t.d. vinnulotum, rykbindingu og hávaðavörnum) til að halda áhrifum innan viðmiða.
Jákvæð tímabundin áhrif á atvinnu og þjónustu á framkvæmdatíma. Unnið er í virku samráði og með reglulegri upplýsingagjöf.
Leyfismál
Verkefnið þurfti ekki að fara í gegnum rammaáætlun. Verkefnið er hinsvegar matsskylt og er umhverfismati lokið.
Aðalskipulag og deiliskipulag liggur fyrir. Virkjunarleyfi liggur fyrir. Framkvæmdaleyfi fyrir aðstöðusköpun og vinnubúðir liggur fyrir og verið er að sækja um framkvæmdaleyfi fyrir stækkuninni.