Sjálfbærni Fljótsdalsstöðvar

Opinn kynningarfundur um sjálfbærniúttekt og gullvottun Fljótsdalsstöðvar var haldinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum miðvikudaginn 11. júní 2025.

Upptaka af fundinum

Sjálfbærniúttekt Fljótsdalsstöðvar

11. júní 2025

Dagskrá

Fundarstjóri var Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.

  1. Framúrskarandi árangur
    Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
  2. Measurable Sustainability: Getting to Know the Hydropower Sustainability Standard
    Mariana Empis, Engagement Officer hjá Hydropower Sustainability Alliance
  3. Sjálfbærni Fljótsdalsstöðvar, úttekt og niðurstöður
    Gunnhildur Ingibjörg Georgsdóttir, sérfræðingur hjá Stefnumótun og sjálfbærni og Árni Óðinsson verkefnisstjóri hjá Nærsamfélagi og náttúru
  4. Vöktun náttúru
    Ásrún Elmarsdóttir, sérfræðingur hjá Nærsamfélagi og náttúru

Framúrskarandi árangur Fljótsdalsstöðvar

Lesa frétt um gullvottunina

Í maí 2025 fékk Fljótsdalsstöð gullvottun samkvæmt Hydropower Sustainability Standard, sem er staðall á vegum Sjálfbærnisamtaka vatnsaflsgeirans (Hydropower Sustainability Alliance).

Að þróun hans komu fulltrúar vatnsaflsfyrirtækja, stjórnvalda, samfélags- og umhverfissamtaka og fjármálastofnana.