Fljótsdalsstöð fær gullvottun í sjálfbærni

21.05.2025Umhverfi, Samfélag

Gullvottun í sjálfbærni

Sjá úttektarsíðuna á vef HSA

Viðamikil sjálfbærniúttekt á rekstri Fljótsdalsstöðvar fór fram í septembermánuði og skemmst er frá því að segja að stöðin fékk bestu niðurstöður sem fengist hafa úr úttekt samkvæmt staðlinum og gullvottun í kjölfarið. Þar er um að ræða svokallaðan HSS-staðal, „Hydropower Sustainability Standard“, sem er á vegum Sjálfbærnisamtaka vatnsaflsgeirans („Hydropower Sustainability Alliance“). Að þróun staðalsins komu fulltrúar vatnsaflsfyrirtækja, stjórnvalda, samfélags- og umhverfissamtaka og fjármálastofnana.

Í staðlinum eru tólf þættir metnir sem skipta mestu máli þegar kemur að sjálfbærni í rekstri vatnsaflsstöðva. Fljótsdalsstöð náði yfir 80% af ýtrari kröfum um bestu starfsvenjur í hverjum sjálfbærniþætti og má sjá sundurliðun í meðfylgjandi mynd.

Sem fyrr segir var úttektin viðamikil, en þrír vottaðir matsaðilar komu hingað til lands og tóku 52 viðtöl við 68 viðmælendur á fjórum dögum; í Fljótsdalsstöð, Katrínartúni, á Egilsstöðum og í vettvangsferðum. Staðallinn gerir ráð fyrir samtali við óvenju breiðan hóp hagaðila, allt frá stofnunum til landeigenda, og gekk mjög vel að fá þá til viðtals. Við viljum færa þeim sérstakar þakkir fyrir samvinnuna.

Í skýrslu úttektaraðila segir m.a.: „Niðurstöðurnar sýna fram á framúrskarandi árangur í sjálfbærni.“ Eftir opið umsagnarferli sóttum við um gullvottun stöðvarinnar fyrir vatnsaflsstöð í rekstri og var hún staðfest, en til þess að geta sótt um hana þarf að ná 60% af ýtrari kröfum staðalsins. Gullvottunin gildir til fimm ára í senn.