Verktakar óskast í smærri verk
Við hjá Landsvirkjun gerum stóra samninga við verktaka vegna framkvæmdaverkefna. Þar má nefna uppbyggingu Hvammsvirkjunar og Vaðölduvers, stækkun Sigöldustöðvar og framkvæmdaverkefni við Þeistareykjastöð, svo stærstu verkefnin á næstunni séu tíunduð. Öll stærri verk á vinnslusvæðum okkar fara áfram í gegnum útboðsvef.
Á sama tíma höldum við áfram að reka allar aflstöðvarnar okkar og þar falla líka til ófá verkefnin. Reynslan hefur kennt okkur að auk stærri og lengri samninga kalla framkvæmdir og daglegur rekstur á fjölmörg smærri verk með litlum fyrirvara og nauðsynlegt að kalla til ýmsa verktaka vegna þeirra. Samningar við smærri verktaka eru í samræmi við samfélagsstefnu orkufyrirtækis þjóðarinnar en tilgangur hennar er að stuðla að jákvæðum samfélagsáhrifum og samfélagsábata af starfsemi fyrirtækisins, samhliða ábyrgri nýtingu auðlinda.
Til að gera leit að slíkum smærri verktökum skilvirkari viljum við koma okkur upp lista yfir tiltæka verktaka á svæðinu. Við sjáum fyrir okkur að byrja alltaf á að fletta upp í þeim lista þegar þörf er á að kalla fleiri til verka. Nú óskum við eftir að allt áhugasamt fólk, sem hefur hug á að vera á listanum, sendi okkur upplýsingar um sig, sérsvið sitt og hvernig best sé að hafa samband.
Listi af þessu tagi er hvorki skuldbindandi fyrir okkur hjá Landsvirkjun né ykkur sem viljið vera þar á skrá. Þið getið skráð ykkur á hann hvenær sem er og út af honum aftur ef svo ber undir. Hann er eingöngu hugsaður til að veita gott yfirlit yfir hvaða sérhæfða starfsfólk gæti verið til taks á svæðinu hverju sinni.