Allt að gerast á Þjórsársvæði

01.06.2026Fréttabréf starfssvæða

Fréttamolar Landsvirkjunar á Þjórsársvæði | Maí 2026

Framkvæmdir í fullum gangi í Vaðölduveri
Framkvæmdir í fullum gangi í Vaðölduveri

Sjálfvirkt eftirlitsflygildi prófað

Sjá myndir frá flygildinu

Landsvirkjun vinnur um þessar mundir að tilraunaverkefni í samstarfi við Svarma ehf. sem felur í sér eftirlit með ástandi virkjanamannvirkja og notkun á sjálfvirku flygildi til verksins. Verkefnið stendur yfir til eins árs og mjög fróðlegt verður að sjá hvernig flygildið stendur sig við þær veðurfarsaðstæður sem hér eru ríkjandi.

Mynd tekin af flygildinu - Ísakot í forgrunni.
Mynd tekin af flygildinu - Ísakot í forgrunni.

Með þessu er hægt að spara ferðir og til að mynda fylgjast með og taka myndir af því þegar verið er að stýra vatnsrennsli, fylgjast með snjóalögum og vakta almennt ástand virkjanamannvirkja.

Georg hættir sem stöðvarstjóri

Georg Þór Pálsson hefur látið af störfum sem stöðvarstjóri á Þjórsársvæði og verið ráðinn forstöðumaður rekstrar jarðvarma hjá Landsvirkjun. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2001 og gegnt ýmsum ábyrgðarstörfum. Fyrstu fimm árin var hann viðhaldsstjóri á Búrfellssvæði, áður en hann tók við sem fyrsti stöðvarstjóri Fljótsdalsstöðvar. Hann gegndi því starfi í 10 ár, en frá árinu 2016 hefur hann verið stöðvarstjóri á Þjórsársvæði, stærsta vinnslusvæði Landsvirkjunar.

Daði Viðar Loftsson frá Steinsholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hefur tekið tímabundið við af Georg, en hann hefur starfað hjá Landsvirkjun í 35 ár. Auglýst hefur verið eftir stöðvarstjóra á Þjórsársvæði.

Vindmyllurnar rísa

Meira um Vaðölduver

Flutningar á vindmyllum í Vaðölduver eru hafnir, en þeir eru á meðal umfangsmestu þungaflutninga sem farið hafa fram á Íslandi. Flutningarnir fara fram í tveimur áföngum, vorin 2026 og 2027, og stendur hvor þeirra í 7–9 vikur.

Vindmylluhlutarnir komnir í Vaðölduver.
Vindmylluhlutarnir komnir í Vaðölduver.

Flutningarnir fara fram sex kvöld og nætur í viku, með hléi aðfaranótt sunnudags, og tekur ferðin frá Þorlákshöfn að Vaðölduveri yfirleitt 4–6 klukkustundir, miðað við um 30 km/klst hraða. Unnið hefur verið að því að styrkja vegi og bæta aðstæður til flutninganna, meðal annars með framkvæmdum á Votmúlavegi, við Landvegamót og á Landvegi í Holtsmúlasundi og við Búrfell.

Fyrsta vindmyllan rís í Vaðölduveri.
Fyrsta vindmyllan rís í Vaðölduveri.

Í framhaldinu hófst vinna við að reisa vindmyllurnar, en til þess voru fluttir inn sér kranar og er sá hæsti um 100 metra langur. Af öryggisástæðum er ekki hægt að heimila umferð utanaðkomandi aðila á vinnusvæðinu, en verið er að útbúa góðan útsýnisstað sunnan Sprengisandsleiðar fyrir þá sem vilja skoða svæðið.

Framkvæmdir við Sultartangavirkjun

Meira um Sultartangastöð

Landsvirkjun vinnur nú að víkkun aðrennslisganga Sultartangastöðvar, en góð staða í lónum og tímabundið svigrúm á raforkumarkaði gera kleift að taka virkjunina úr vinnslu og fara í þessa framkvæmd á þessum tímapunkti.

Með þessu er unnið í samræmi við hlutverk Landsvirkjunar, um að hámarka verðmæti þeirra endurnýjanlegu orkulinda sem fyrirtækinu er trúað fyrir með sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi.

Ráðningar í sumarstörf

Meira um sumarstörf

Í sumar verða 37 ungmenni við sumarvinnu á Þjórsársvæði. Tveir verkstjórar hafa einnig verðið ráðnir sem munu fylgja þeim eftir við hin ýmsu störf er snúa að umhverfi svæðisins.

Auk þess hafa verið ráðnir fimm vélfræði- og rafvirkjanemar sem munu sinna viðhaldi búnaðar í aflstöðvum svæðisins.

Gústav Magnús Ásbjörnsson
VerkefnisstjóriNærsamfélag og náttúra
VerkefnisstjóriNærsamfélag og náttúra