Sumarstörf hjá Landsvirkjun

Á hverju ári auglýsum við eftir ungu fólki í fjölbreytt sumarstörf, bæði í höfuðstöðvunum okkar í Reykjavík og aflstöðvum víða um land. Spennandi tækifæri fyrir háskóla-, iðn- og tækninema, öfluga verkstjóra og kraftmikil ungmenni!

Umsóknarfrestur fyrir sumarið 2026 rann út sunnudaginn 22. febrúar.

Tækifæri fyrir háskóla-, iðn- og tækninema

Við hjá Landsvirkjun höfum um árabil ráðið metnaðarfullt fólk í háskóla-, iðn- og tækninámi til starfa yfir sumarið. Sumarstörfin okkar eru spennandi tækifæri til að taka virkan þátt í starfsemi fyrirtækisins, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á starfssvæðum okkar víðs vegar um landið.

Verkefnin eru fjölbreytt og auðvelt fyrir öflugt fólk að blómstra á sínu sérsviði; hvort sem það er viðhald á vélum, efnisgerð fyrir samfélagsmiðla, rannsóknir og greiningar, stjórnun verkefna, móttaka gesta, aðstoð í mötuneyti, innkaup eða lögfræðimál!

Skemmtileg sumarvinna fyrir ungmenni

Við aflstöðvarnar okkar á landsbyggðinni geta 16-18 ára ungmenni fengið vinnu við daglega umhirðu á starfssvæðinu, auk annarra umhverfistengdra verkefna í nágrenninu.

Við bjóðum einnig upp á tækifæri til að leiða þetta starf – vinaleg og ábyrg verkstjórn er vel þegin til að tryggja góða liðsheild og sýnilegan árangur í íslenska sumarveðrinu!

Viltu vita meira?

Ef þú vilt forvitnast um sumarstörfin geturðu alltaf haft samband við okkur í sumarstorf@landsvirkjun.is.

Ef þig langar að vita meira um hvernig er að vinna hjá Landsvirkjun, hvað fyrirtækið gerir eða hvað er efst á baugi geturðu smellt á tenglana hér fyrir neðan.

Fylgdu okkur!

Við erum dugleg að miðla skemmtilegu og fjölbreyttu efni á samfélagsmiðlunum okkar. Við mælum með að þú fylgir okkur - smelltu á tenglana hér fyrir neðan til að skoða!