Landsvirkjun sýnir stuðning í verki

07.05.2020Viðskipti

Viðskiptavinir Landsvirkjunar á stórnotendamarkaði munu njóta sérstakra kjara í 6 mánuði, frá 1. maí til 31. október 2020. Öllum stórnotendum, sem greiða yfir kostnaðarverði Landsvirkjunar, býðst að lækka raforkuverð niður í kostnaðarverðið. Þannig sýnir Landsvirkjun stuðning sinn í verki á þessum óvenjulegu tímum.

Viðskiptavinir Landsvirkjunar á stórnotendamarkaði munu njóta sérstakra kjara í 6 mánuði, frá 1. maí til 31. október 2020. Öllum stórnotendum, sem greiða yfir kostnaðarverði Landsvirkjunar, býðst að lækka raforkuverð niður í kostnaðarverðið. Þannig sýnir Landsvirkjun stuðning sinn í verki á þessum óvenjulegu tímum.

Samband fyrirtækisins við viðskiptavini þess er hornsteinn starfsemi Landsvirkjunar. Þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að raforka er stór hluti breytilegs framleiðslukostnaðar þeirra. Raforkuverð er þannig einn af þeim þáttum sem hafa áhrif á samkeppnishæfni viðskiptavina Landsvirkjunar, en þó ekki sá sem hefur úrslitaáhrif á fjárhagslega afkomu þeirra. Þar skiptir afurðaverðið, t.d. verð á áli og kísilmálmi, mestu máli. Afurðaverð hefur farið lækkandi undanfarin misseri, m.a. vegna offramleiðslu og birgðasöfnunar.

Raforkuverð á erlendum raforkumörkuðum hefur lækkað talsvert undanfarna mánuði vegna lækkandi verðs á jarðefnaeldsneyti og svo minnkandi eftirspurnar á þessu ári vegna COVID-19. Ljóst er að starfsumhverfi viðskiptavina Landsvirkjunar er afar krefjandi um þessar mundir vegna áhrifa faraldursins. Til þess að styrkja samkeppnishæfni viðskiptavina á alþjóðamörkuðum og markaðssókn hefur Landsvirkjun ákveðið að fara í almennar aðgerðir á tímum COVID-19-faraldursins.

Viðskiptavinir Landsvirkjunar á stórnotendamarkaði munu njóta sérstakra kjara í 6 mánuði, frá 1. maí til 31. október 2020. Öllum stórnotendum sem greiða yfir kostnaðarverði Landsvirkjunar mun bjóðast lækkun raforkuverðs niður í kostnaðarverð Landsvirkjunar, sem er á bilinu $28/MWst til $35/MWst eftir því til hvaða virkjana er horft. Verð til stórnotenda, sem eru núna að borga yfir kostnaðarverði, lækkar því tímabundið um allt að 25%.

Markmið aðgerðanna er að verja samkeppnishæfni viðskiptavina Landsvirkjunar og styðja við markaðsstarf þeirra við krefjandi ytri aðstæður. Horft er til þess að með aðgerðunum sé verið að hvetja núverandi viðskiptavini á stórnotendamarkaði til þess að styrkja eða auka við starfsemi sína á Íslandi, enda fara langtímahagsmunir Landsvirkjunar og viðskiptavina saman. Gert er ráð fyrir að tekjur Landsvirkjunar muni lækka um allt að $10 milljónir vegna þessarar tímabundnu aðgerðar, eða um 1,5 milljarða króna.

Lítil áhrif á smásölumarkað

Fyrir utan stórnotendamarkað, þá þjónar Landsvirkjun einnig almennum markaði. Það gerist í gegnum heildsölumarkað þar sem smásölufyrirtæki í orkusölu kaupa raforku til skemmri tíma, þ.e. grunnorku og aðrar orkuvörur sem bjóða upp á breytilegt notkunarmynstur. Verðmyndun í smásölu byggist á þessum heildsölukaupum, auk kostnaðar smásölufyrirtækjanna af eigin vinnslu og álagningu.

Markaðshlutdeild Landsvirkjunar á almennum markaði er um 50%. Verðlagning Landsvirkjunar á raforku inn á almennan markað er ákveðin með reglubundnum hætti og er tekið mið af framboði og eftirspurn. Verð fyrir næstu fimm mánuði, maí-september 2020, hefur verið uppfært og er þar tekið tillit til þeirra aðstæðna sem nú eru á markaði. Með því móti er Landsvirkjun að koma til móts við smásölumarkaðinn, en hafa ber í huga að raforkan sjálf er ekki stór hluti raforkureiknings notenda á almennum markaði. Flutningur og dreifing eru þar fyrirferðarmeiri og munar því meira um það ef dreifiveitum er heimilað að lækka tímabundið flutnings- og dreifigjald til viðskiptavina sinna.

Eftir Stefaníu Guðrúnu Halldórsdóttur.
Birtist í Morgunblaðinu.
Höfundur er framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar.