Störf í boði

Landsvirkjun er skemmtilegur og spennandi vinnustaður og störfin hjá okkur eru fjölbreytt.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og vaxa í starfi og vinna að verkefnum sem það hefur ástríðu fyrir. Ekki hika við að sækja um hjá okkur ef þú sérð starf hér á síðunni sem vekur áhuga þinn!

Almenn umsókn

  • Viljir þú slást í hóp starfsfólks Landsvirkjunar getur þú sent okkur almenna umsókn.

    Athugið að almenn umsókn kemur ekki í stað umsóknar um auglýst störf. Við hvetjum þig til að fylgjast áfram með auglýstum störfum og sækja um ef þú uppfyllir skilyrði um menntun og hæfni.

Persónuverndar­stefna

Lesa persónuverndarstefnu fyrir umsækjendur

Landsvirkjun er umhugað um öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með innan fyrirtækisins.

Þess vegna höfum sett okkur sérstaka persónuverndarstefnu fyrir umsækjendur um störf.

Hún segir meðal annars til um hvaða persónuupplýsingum við söfnum, hvers vegna, hversu lengi upplýsingarnar eru varðveittar, hvert þeim kann að vera miðlað og hvernig við tryggjum öryggi þeirra.