Framkvæmdir

Hér geturðu fræðst um framkvæmdirnar við Vaðölduver, séð hvað er framundan, ásamt helstu upplýsingum um framkvæmdasvæðið og uppbyggingu þess. Ef þú vilt sjá hvað er að gerast einmitt núna skaltu skoða fréttavakt verkefnisins.

Hvaða verkefni eru í gangi?

Framkvæmdir 2026

  • Uppbygging innviða innan framkvæmdasvæðis heldur áfram; undirstöður, lagnaskurðir, safnstöð o.fl.
  • Uppbygging Landvegar heldur áfram​. 13-14 km kafli endurbættur, bygging nýrrar brúar og sett á bundið slitlag​.
  • Uppsetning, prófanir og gangsetning á fyrstu 14 vindmyllum hefjast.
  • Framkvæmdir við þjónustuhús Vaðölduvers á Hellu hefjast.

Áhrif framkvæmda utan framkvæmdasvæðisárið 2026

  • Flutningar á vindmyllum og búnaði frá Þorlákshöfn að Vaðölduveri standa yfir á vor- og sumarmánuðum.
  • Framkvæmdir við þjónustuhús á Hellu.
Unnið að uppsetningu á fyrstu vindmyllunum í byrjun júní 2026
Unnið að uppsetningu á fyrstu vindmyllunum í byrjun júní 2026

Helstu stærðir

  • Vegagerð

    0km

    Framkvæmdarsvæði

  • Vegbætur

    0km

    Landvegur

  • Skurðir

    0km

    Á framkvæmdarsvæði

  • Strenglagnir

    0km

    Á framkvæmdarsvæði

  • Safnstöð

    0

    Grafinn grunnflötur, auk 180 m² kjallara

  • Steypa

    400m3

    Í hverja undirstöðu

  • Þvermál undirstöðu

    23m
  • Flatarmál undirstöðu

    415m2
  • Járn

    0tonn

    Í hverja undirstöðu

Þjónustuhús á Hellu

Við hjá Landsvirkjun erum að hefja framkvæmdir við þjónustuhús fyrir Vaðölduver.

Húsið verður að Faxaflötum 2a á Hellu, og fær mikilvægt hlutverk sem þjónustumiðstöð fyrir Vaðölduver. Auk starfsfólks frá vindmylluframleiðandanum Enercon mun okkar starfsfólk einnig hafa aðstöðu í húsinu.

Þjónustuhúsið verður um 440 fermetrar að stærð en þar verður m.a. að finna skrifstofurými, fundarherbergi, kaffiaðstöðu og bílskúr. Einnig verður sérstök hjólageymsla á lóðinni.

Útsýnis- og áningastaður

Gerður verður áningarstaður fyrir ferðamenn sunnan við Vaðölduver og Sprengisandsleið. Þar verður bílastæði og stutt gönguleið að útsýnissvæði með skiltum og góðu útsýni yfir framkvæmdasvæðið. Áhersla verður lögð á vandaðan frágang og áreiðanlega upplýsingaöflun.

Vaðölduver er virkt framkvæmdasvæði á framkvæmdatíma og því er mikilvægt að gestir fylgi leiðbeiningum og merkingum. Upplýsingar um aðgengi og útfærslu áningarstaðarins verða uppfærðar hér á síðunni eftir því sem verkefninu vindur fram.

Framkvæmdasvæðið

1234567

Vindmyllur

Bláu punktarnir á kortinu eru vindmyllurnar 28 sem reistar verða í Vaðölduveri.

Vegslóðar

Á svæðinu verða lagðir alls 25 km af vegum og vegslóðum að vindmyllum.

Kranastæði

Við hverja undirstöðu verður varanlegt kranastæði sem staðsett verður með tilliti til burðarþols og aðgengis, sjá ljósbláu kassana á kortinu. Stæðið verður notað meðan verið er að reisa vindmyllurnar og til að sinna viðhaldi á rekstrartíma.

Skrifstofur og geymslusvæði

Á svæðinu verður skrifstofuaðstaða fyrir starfsfólk, auk mötuneytis og rýmis fyrir heilsugæslu. Við skrifstofuaðstöðuna er einnig geymslusvæði fyrir búnað og fleira.

Safnstöð og tengivirki

Safnstöð Vaðölduvers og tengivirki Landsnets eru staðsett hlið við hlið.

Safnstöðin tekur við rafmagni frá vindmyllum, umbreytir spennu og flytur orkuna til tengivirkisins, sem síðan tengist flutningskerfi Landsnets og dreifir orku inn á kerfið.

Útsýnisstaður

Sunnan við Vaðölduver verður útsýnisstaður þar sem hægt verður að koma á bíl til að fá bestu mögulegu yfirsýn yfir framkvæmdasvæðið.

Steypustöð

Steypustöð á verkstað er tímabundin blöndunarstöð til að framleiða steypu fyrir verkefnið, í stað þess að flytja tilbúna steypu langar vegalengdir.