Mat á umhverfisáhrifum
Mati á umhverfisáhrifum lauk í desember 2016, en verkfræðistofan Mannvit vann það fyrir Landsvirkjun. Í matsskýrslunni var fjallað um möguleg umhverfisáhrif allt að 200 MW vindlundar sem fæli í sér uppbyggingu 58-67 vindmylla sem yrðu að hámarki 150 m háar. Fjallað var um staðsetningu vindlundar og kosti hennar með tilliti til innviða og vindafars og rætt um tengsl framkvæmdanna við skipulag og vernd á svæðinu, þ.m.t. landsskipulag og aðal- og deiliskipulagsáætlanir.
Eftirfarandi umhverfisþættir voru til skoðunar:
- Ásýnd
- Landslag
- Hljóðvist
- Jarðmyndanir
- Gróður
- Fuglar
- Samfélag
- Fornleifar
Áhrif á hljóðvist, jarðmyndanir, gróður, fugla og fornleifar voru metin óveruleg. Áhrif á íbúa, ferðaþjónustu og ferðamenn voru metin nokkuð neikvæð en nokkuð jákvæð á sveitarfélög. Áhrif á landslag og ásýnd fengu mismunandi einkunnir, allt frá því að vera talin „engin“ og upp í „verulega neikvæð“. Áhrif vegna ásýndar eru mismunandi eftir fjarlægð, staðsetningu og legu í landslagi.
Tillögur að afmörkun Vaðölduvers mótuðust í gegnum matsferlið með það að markmiði að koma til móts við ábendingar og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Drög að vöktunaráætlun eru birt í skýrslunni og er þar gert ráð fyrir vöktun á nokkrum umhverfisþáttum, bæði á framkvæmda- og rekstrartíma.
Mikilvægt er að hafa í huga að matsskýrslan sýnir eldri útfærslu Vaðölduvers, áður Búrfellslundar. Í nýrri útfærslu og endurhönnun sem birt var árið 2020 breyttist staðsetning og uppröðun vindmylla, en var áfram innan rannsóknarsvæðis.
