Flutningar vindmylla í Vaðölduver

Hér getur þú nálgast helstu upplýsingar um næturflutninga á vindmyllum í Vaðölduver. Hægt er að fylgjast með helstu tilkynningum á umferdin.is.

Einnig getur þú skráð þig á póstlista til að fá mikilvægustu tilkynningarnar um flutningana sendar í tölvupósti.

Hvenær verða flutningarnir?

  • Næturflutningar á vindmyllum í Vaðölduver hófust aðfaranótt 7. maí.
  • Flutningarnir verða að jafnaði 6 nætur vikunnar. Hlé verður tekið aðfaranótt sunnudags.
  • Flutningarnir munu taka um 7 til 9 vikur.
  • Meðalhraði flutningslestar er áætlaður um 30 km/klst sem þýðir að ferðatími frá Þorlákshöfn í Vaðölduver verður yfirleitt 4–6 klukkustundir.
  • Flutningarnir verða í tveimur áföngum, árin 2026 og 2027. Seinni áfangi hefst vorið 2027.
Fyrsta flutningalestin leggur af stað úr Þorlákashöfn í Vaðölduver í byrjun maí 2026.
Fyrsta flutningalestin leggur af stað úr Þorlákashöfn í Vaðölduver í byrjun maí 2026.

Um flutningsleiðina

Skoða Google Maps kort

Flutningsleiðin er um 130 km og liggur um fimm sveitarfélög; Árborg, Ölfus, Flóahrepp, Ásahrepp og Rangárþing ytra.

Alls verða farnir um 350-400 stakir flutningar þar sem hver flutningslest getur orðið allt að 250 m löng. Fyrir hverja vindmyllu þarf 13 leyfisskylda flutninga. Lokanir og hjáleiðir verða auglýstar sérstaklega þegar nær dregur.

Til þess að tryggja flutningsleiðina var ráðist í framkvæmdir á ýmsum stöðum. Hægt er að sjá upplýsingar um þessar framkvæmdir á kortinu hér fyrir neðan.

Framkvæmdir á flutningsleiðinni

1234567891011

Nesbraut

Við Nesbraut í Þorlákshöfn voru akstursrými breikkuð í beygjum. Taka þarf ljósastaura og skilti tímabundið þegar flutningslest fer hjá.

Laxabraut

Við Laxabraut í Þorlákshöfn þarf að taka niður ljósastaura í beygjum þegar flutningslest fer hjá.

Laxabraut / Suðurstrandarvegur

Á þessum gatnamótum voru akstursrými breikkuð í beygju. Taka þarf ljósastaura og skilti tímabundið þegar flutningslest fer hjá.

Suðurstrandarvegur / Þorlákshafnarvegur

Á þessum gatnamótum var akstursrými breikkað í beygju. Taka þarf ljósastaura og skilti tímabundið þegar flutningslest fer hjá.

Þorlákshafnarvegur / Eyrarbakkavegur

Á þessum gatnamótum var akstursrými breikkað í beygju. Taka þarf skilti tímabundið niður þegar flutningslest fer hjá.

Eyrarbakkavegur / Votmúlavegur

Á þessum vegamótum var beygjuradíus aukinn. Útbúið var auka akstursrými fram hjá vegamótunum og reiðstígur gerður meðfram breikkuninni. Taka þarf skilti tímabundið niður þegar flutningslest fer hjá. Girðing var fjarlægð og ný sett upp.

Votmúlavegur / Gaulverjabæjarvegur

Við þessi vegamót var akstursrými breikkað í beygju. Taka þarf niður skilti þegar flutningslest fer hjá.

Gaulverjabæjarvegur / Suðurlandsvegur

Við þessi vegamót var akstursrými í beygju breikkað og reiðstígur aðlagaður. Taka þarf niður skilti þegar flutningslest fer hjá.

Landvegamót

Við Landvegamót var aksturssvæði við hringtorg breikkað. Taka þarf niður skilti og ljósastaura þegar flutningslest fer hjá.

Landvegur

Á Landvegi er unnið að endurbótum á um 13 km kafla þar sem lagt verður bundið slitlag. Jafnframt hefur verið byggð brú yfir farveg leysingarvatns, Helliskvíslar, nærri Ísakoti.

Landvegur / Sprengisandsleið

Við þessi vegamót var akstursrými breikkað og taka þarf niður skilti þegar flutningslest fer hjá.

Spurt og svarað

  • Gert er ráð fyrir að fyrri hlutinn, 14 vindmyllur og spennir, verði fluttur í maí og júní 2026. Seinni 14 vindmyllurnar verða fluttar í maí og júní 2027. Flutningarnir verða að jafnaði 6 kvöld og nætur vikunnar, hlé verður tekið aðfaranótt sunnudags. Fyrsti flutningur er áætlaður aðfararnótt fimmtudagsins 7. maí.

  • Meðalhraði flutningslestar er áætlaður um 30 km/klst sem þýðir að ferðatími frá Þorlákshöfn í Vaðölduver verður yfirleitt 4–6 klukkustundir. Flutningstímabilið er um 7–9 vikur, frá byrjun maí til enda júní eða byrjunar júlí.

  • Áætlað er að flutningslestin verði um 60 mínútur að ferðast á Þjóðvegi 1, frá Selfossi að Landvegamótum.

  • Heildarfjöldi ferða verður á bilinu 350–400, þar sem gera má ráð fyrir 13 leyfisskyldum flutningum fyrir hverja vindmyllu.

  • Enercon hefur gert samninga við norska fyrirtækið Bergen Spesial Transport AS og íslenska fyrirtækið ET ehf. sem eru undirverktakar hjá Bergen um flutning vindmyllubúnaðarins innanlands. Fyrirtækin eru sérhæfð í mjög stórum og flóknum þungaflutningum.

  • Flytja þarf vindmyllurnar frá Þorlákshöfn að Vaðölduveri. Flutningsleiðin er um 130 kílómetrar. Hægt er að sjá flutningsleiðina á myndrænan hátt hér.

  • Nei, ekki verður leyft að taka fram úr flutningalestunum. Bílar sem koma á móti þurfa að færa sig út í kant og bíða á meðan flutningarnir fara hjá, en aðeins verður um tímabundnar lokanir að ræða, helst við gatnamót meðan flutningar fara þar um. Lokanir vega og hjáleiðir verða kynntar sérstaklega. Lögreglan sér alfarið um umferðastýringu á meðan á leyfisskyldum flutningum stendur.

  • Þungir flutningar valda alltaf aukaálagi á vegi, en í þessu verkefni er sérstaklega hugað að því að vegirnir standist það álag og að þeir verði ekki fyrir óviðunandi skemmdum. Flutningsleiðin er styrkt og breikkun vega og aðrar vegabætur gerðar í nánu samstarfi við Vegagerðina.

    Flutningsvagnar eru hannaðir til að dreifa þyngdinni á marga öxla og farið verður hægt yfir. Þar sem þörf krefur er gert ráð fyrir viðhaldi og lagfæringum í kjölfar flutninga, og breikkuðu og styrktu vegkaflarnir verða að lokum hluti af varanlegu vegakerfi Vegagerðarinnar sem nýtist allri umferð til framtíðar.

  • Flutningabílarnir ná beygjum annars vegar vegna þess að vegamót og aksturssvæði verða breikkuð og aðlöguð fyrir sérlega langar og þungar lestar, hins vegar vegna þess að notaðir eru sérhæfðir vagnar með mörgum stýrandi öxlum. Þeir gera lestinni kleift að fylgja sveigju vegarins á öruggan hátt.

    Ekið verður hægt undir stjórn sérþjálfaðra ökumanna og leiðsögubíla og þar sem þarf verður umferð stöðvuð tímabundið svo hægt verði að nota meira rými á veginum til að ná þrengri beygjum.

  • Ef þú finnur ekki svar við spurningu hér á síðunni eða finnst einhverjar spurningar vanta getur þú sent okkur fyrirspurn.

Hvernig verða myllurnar fluttar til landsins?

Vindmylluíhlutirnir verða fluttir sjóleiðina til Þorlákshafnar með sérhæfðum flutningaskipum sem eru hönnuð fyrir farm af þessu tagi. Þar á meðal er skipið E-Ship 1 frá Enercon, en einnig kunna önnur sambærileg skip að verða notuð við flutningana.

Gámar, stakur búnaður og þyngri og umfangsmeiri búnaður verður fluttur að Vaðölduveri í hefðbundnum vögnum en turnhlutar og rafalar verða fluttir á vögnum sem verða sérstaklega fluttir til landsins.

Myndbönd um flutninga

Myndböndin hér fyrir neðan sýna dæmi um bæði umfang skipaflutninga og flutninga vindmylluíhluta frá höfn. Í þessu tilviki er verið að flytja íhluti frá Enercon sem framleiðir og afhendir vindmyllurnar fyrir Vaðölduver.

Myndböndin gefa góða mynd af því hvernig sambærilegir flutningar verða hér á landi.