Vindurinn beislaður við Vaðöldu
Við vinnum nú af fullum krafti af því að reisa fyrsta vindorkuver landsins á hraun- og sandsléttu við Vaðöldu austan Þjórsár, sunnan við Sultartangastíflu. Í Vaðölduveri verða reistar 28 vindmyllur frá þýska vindmylluframleiðandanum Enercon. Stefnt er á að helmingur þeirra verði gangsettur haustið 2026 og vindorkuverið verði að fullu tilbúið og komið í rekstur fyrir lok árs 2027.
Verkefnið felur í sér viðamiklar framkvæmdir, uppbyggingu og styrkingu á vegum að framkvæmdasvæðinu og einhverja umfangsmestu þungaflutninga sem fram hafa farið á Íslandi.
Vaðölduver er á stærsta aflsvæði Landsvirkjunar, Þjórsár- og Tungnaársvæðinu, þar sem nú þegar eru sjö vatnsaflsstöðvar í rekstri og sú áttunda bætist við þegar Hvammsvirkjun tekur til starfa.




