Áratugur jarðhitans runninn upp

28.10.2021Orka
Hildigunnur Thorsteinsson og Bjarni Pálsson, sem fóru fyrir íslensku undirbúningsnefndinni, afhenda kínversku sendinefndinni leiðtogahlutverkið fyrir næstu ráðstefnu með táknrænum hætti en listaverkið Sólfarið þykir fela í sér von og birtu.  Mynd/Tom Urban. Georg
Hildigunnur Thorsteinsson og Bjarni Pálsson, sem fóru fyrir íslensku undirbúningsnefndinni, afhenda kínversku sendinefndinni leiðtogahlutverkið fyrir næstu ráðstefnu með táknrænum hætti en listaverkið Sólfarið þykir fela í sér von og birtu. Mynd/Tom Urban. Georg

Heimsþing Alþjóða jarðhitasambandsins setti fram meginreglur um sjálfbærni jarðvarmaverkefna

Íslenska undirbúningsnefndin afhenti kínversku sendinefndinni leiðtogahlutverkið fyrir næstu ráðstefnu með táknrænum hætti en listaverkið Sólfarið þykir fela í sér von og birtu en einnig færði Andy Blair, forseti Alþjóða jarðhitasambandsins, þeim fagurlega útskorna ár frá frumbyggjum Nýja Sjálands sem einnig táknar farsæla för.  Mynd/Tom Urban. Georg
Íslenska undirbúningsnefndin afhenti kínversku sendinefndinni leiðtogahlutverkið fyrir næstu ráðstefnu með táknrænum hætti en listaverkið Sólfarið þykir fela í sér von og birtu en einnig færði Andy Blair, forseti Alþjóða jarðhitasambandsins, þeim fagurlega útskorna ár frá frumbyggjum Nýja Sjálands sem einnig táknar farsæla för. Mynd/Tom Urban. Georg

Marit Brommer, framkvæmdastjóri Alþjóða jarðhitasambandsins, kynnti lokayfirlýsingu heimsþings Alþjóða jarðhitasambandsins – svokallaða Reykjavíkuryfirlýsingu – en þingið var haldið í Hörpu 24.-27. október.

Í Reykjavíkuryfirlýsingunni eru settar fram meginreglur og tilmæli til alþjóðlega jarðhitageirans, um að efla sinn hlut í orkuskiptunum sem verðmætaskapandi, hreinn og hagkvæmur orkugjafi sem þjónar öllu samfélaginu og loftslaginu.

Settar voru fram eftirfarandi meginreglur, tilteknar sem úrslitaatriði fyrir sjálfbæran vöxt jarðvarmaverkefna um allan heim á komandi jarðhitaáratug.

Reykjavíkuryfirlýsingin miðar að því að styrkja grunninn að sjálfbærum vexti jarðvarmalausna með því að mynda sameiginlega framtíðarsýn fyrir jarðhitageirann og breiðan hóp hagsmunaaðila á heimsvísu.

Heimsþingið hefur jafnan verið haldið á fimm ára fresti í mismunandi löndum og er gjarnan kallað „Ólympíuleikar jarðhitans." Næsta þing verður haldið í Kína 2023 en mikil framþróun hefur verið í nýtingu jarðhita þar í landi á undanförnum árum.

Dr. Bjarni Pálsson, formaður skipulagsnefndar heimsþingsins í Reykjavík, og Hildigunnur Thorsteinsson, varaformaður nefndarinnar, afhentu Fang Hua, fulltrúa kínversku sendinefndarinnar á ráðstefnunni formlegt hlutverk gestgjafans með því að rétta honum afsteypu af listaverkinu Sólfar eftir Jón Gunnar Árnason. Verkinu hefur verið lýst með eftirfarandi hætti: „Sólfarið er óður til sólarinnar og felur í sér fyrirheit um ónumið land, leit, framþróun og frelsi. Það er draumbátur sem felur í sér von og birtu.“ Þau skilaboð sagði Bjarni viðeigandi fyrir grein sem vinnur að framþróun jarðhitavinnslu með ábyrgð og sjálfbærni að leiðarljósi. Auk þess afhenti Andrea Blair, forseti Alþjóða jarðhitasambandsins, þeim fagurlega útskorna ár frá Nýja Sjálands, sem líkt og Sólfarið minnir á leið á góðan áfangastað.

Um tvö þúsund gestir voru skráðir á þingið og var rúmur helmingur þeirra viðstaddur í Hörpu en aðrir í gegn um fjarfundabúnað. Á ráðstefnunni var auk Reykjavíkuryfirlýsingarinnar tilkynnt að Alþjóðasamtök jarðhitavinnslu og vatnsaflsvinnslu ætli framvegis að vinna saman að því að tryggja sjálfbærni endurnýjanlegrar orkuvinnslu.

Tilkynningin var hluti af afhendingu íslenskra stjórnvalda til Alþjóða jarðhitasamtakanna á matslykli um sjálfbæra jarðhitanýtingu (Geothermal Sustainability Assessment Protocol, GSAP) sem þróaður hefur verið hér á landi síðustu ár. Það voru þau Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, ásamt Dr. Guðna A. Jóhannessyni, fyrrverandi orkumálastjóra, sem afhentu Andreu Blair, forseta Alþjóða jarðhitasamtakana, og Marit Brommer, framkvæmdastjóra Alþjóða jarðhitasamtakana, matslykilinn með formlegum hætti við setningu Heimsþingsins.