Fyrsta farþegaflug rafmagnsflugvélar á Íslandi

24.08.2022Orka
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, stígur út úr rafmagnsflugvélinni TF-KWH eftir fyrsta farþegaflug hennar á Íslandi.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, stígur út úr rafmagnsflugvélinni TF-KWH eftir fyrsta farþegaflug hennar á Íslandi.

Tímamót í flugsögu

Í dag voru mörkuð tímamót í flugsögu Íslands þegar Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, voru fyrstu farþegar rafmagnsflugvélar á Íslandi í fyrstu tveimur farþegaflugunum. Viðburðurinn fór fram á Reykjavíkurflugvelli og þar voru stigin mikilvæg skref í orkuskiptum flugsamgangna.

Flugvélin sem ber skráninguna TF-KWH er tveggja sæta af gerðinni Pipistrel og er framleidd í Slóveníu. Hún er á stærð við þær vélar sem notaðar eru í flugkennslu hér á landi og er fyrsta rafdrifna flugvélin sem fær flughæfiskírteini á Íslandi.

Ísland er í einstakri stöðu til þess að vera í fararbroddi í heiminum hvað varðar orkuskipti í flugi vegna stuttra flugleiða innanlands, góðs aðgengis að umhverfisvænni raforku, auk þess sem lega landsins milli Evrópu og Norður-Ameríku getur til framtíðar skapað margvísleg tækifæri þegar kemur að orkuskiptum í millilandaflugi. Fyrst um sinn er raunhæft að horfa til orkuskipta minni flugvéla og því næst í farþegaflugi innanlands.

Samstarf er lykillinn að árangursríkum orkuskiptum

Félagið Rafmagnsflug ehf. flutti rafmagnsflugvélina til landsins með það að markmiði að taka frumkvæði í orkuskiptum í flugi, þjálfa starfsfólk í þessari nýju tækni og kynna hana fyrir landsmönnum. Rafmagnsflug ehf. var stofnað af Matthíasi Sveinbjörnssyni og Friðriki Pálssyni í árslok 2021 en þeir hafa unnið að því síðastliðin þrjú ár að fá rafmagnsflugvélina til landsins.

Bakhjarlar félagsins eru fyrirtæki og einstaklingar sem vilja leggja sitt af mörkum til þess að flýta orkuskiptum í flugi og kynna þær tækninýjungar sem unnið er að um þessar mundir. Samstarf milli hagaðila er lykilatriði þegar kemur að orkuskiptum og því er mikilvægt að stærstu bakhjarlarnir eru úr flugrekstri, flugvallarrekstri, orkuframleiðslu og ferðaþjónustu; Icelandair, Isavia, Landsvirkjun og Hótel Rangá. Aðrir bakhjarlar eru Landsbankinn, Flugskólinn Geirfugl, Flugskóli Reykjavíkur, Flugakademía Íslands, ásamt Matthíasi, Friðriki og Herjólfi Guðbjartssyni.

Flugvélin verður notuð í flugkennslu en auk þess er gert ráð fyrir að almenningur muni geta keypt sér útsýnisflug með þessari fyrstu rafmagnsflugvél á Íslandi og upplifað að ferðast um loftin blá á 100% hreinni orku.