Um Hvammsvirkjun

Landsvirkjun hefur um árabil unnið að rannsóknum og undirbúningi fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar. Virkjunin verður á stærsta aflsvæði Landsvirkjunar, Þjórsár- og Tungnaársvæðinu, en þar eru fyrir sjö aflstöðvar sem virkja orku þessara tveggja árkerfa.

Um Hvammsvirkjun

Fyrirhuguð Hvammsvirkjun mun nýta fall Þjórsár neðan Búrfellsvirkjunar, frá svokölluðu Yrjaskeri rétt ofan við bæinn Haga og niður fyrir Ölmóðsey austan við Þjórsárholt. Virkjunin verður á stærsta orkuvinnslusvæði Landsvirkjunar, Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Upptök vatnasviðsins eru í Hofsjökli og Vatnajökli sem ná upp í 1900 m hæð yfir sjó.

Með því að virkja fall í Þjórsá neðan núverandi virkjana vill Landsvirkjun hámarka afraksturinn af þeim orkulindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir.

Hvammsvirkjun verður áttunda vatnsaflsstöðin á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Hér má sjá vatnsborð inntakslóna yfir sjávarmáli.

Hvernig mun svæðið breytast?

Hér getur þú séð hvernig virkjunarsvæðið mun líta út fyrir og eftir framkvæmdir. Dragðu sleðann til vinstri og hægri til að sjá breytinguna.

FyrirEftir
FyrirEftir

Vönduð útlitshönnun

Auk mats- og skipulagsvinnu stendur nú yfir lokaundirbúningur virkjunarinnar, sem m.a. felst í vandaðri útlitshönnun mannvirkja, landslagshönnun, rýni á veigamiklum þáttum hönnunar og útfærslu á mótvægisaðgerðum til að lágmarka umhverfisáhrif.

Aðkoma að stöðvarhúsi Hvammsvirkjunar - tölvugerð mynd
Aðkoma að stöðvarhúsi Hvammsvirkjunar - tölvugerð mynd

Virkjunarsvæðið, sem er í byggð, verður aðgengilegt og öruggt fyrir gangandi gesti sem munu hafa kost á að skoða þar á tiltölulega litlu svæði mannvirki tengd raforkuvinnslu.

FyrirEftir

Helstu stærðir

  • Stærð vatnasviðs

    0km2
  • Virkjað rennsli

    0m3/s
  • Vatnsborð Hagalóns

    0m y.s.
  • Stærð lóns

    0km2
  • Lengd frárennslisganga

    0km
  • Lengd frárennslisskurðar

    0km
  • Virkjað fall

    0m
  • Orkuvinnslugeta

    0gwst/ári
  • Afl virkjunar

    0MW

Hvað er að frétta?

Á forsíðu vefsins getur þú nálgast allar nýjustu fréttir um stöðu mála og framvindu verkefnis um gerð Hvammsvirkjunar.

Fréttavaktin er uppfærð reglulega, auk þess sem þar er að finna tilkynningar og umfjallanir í öðrum miðlum en okkar eigin.

Heimsókn á framkvæmdasvæði

Hópar geta óskað eftir því að heimsækja framkvæmdasvæði okkar í Hvammsvirkjun. Ekki er hægt að verða við öllum beiðnum sem berast; það fer eftir aðstæðum og yfirstandandi verkefnum á verkstað hvort unnt sé að taka á móti hópum.