Um Hvammsvirkjun
Fyrirhuguð Hvammsvirkjun mun nýta fall Þjórsár neðan Búrfellsvirkjunar, frá svokölluðu Yrjaskeri rétt ofan við bæinn Haga og niður fyrir Ölmóðsey austan við Þjórsárholt. Virkjunin verður á stærsta orkuvinnslusvæði Landsvirkjunar, Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Upptök vatnasviðsins eru í Hofsjökli og Vatnajökli sem ná upp í 1900 m hæð yfir sjó.
Með því að virkja fall í Þjórsá neðan núverandi virkjana vill Landsvirkjun hámarka afraksturinn af þeim orkulindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir.








