Takmörkum hlýnun við 1,5°C
Loftslag er eitt af þeim kerfum sem eru komin yfir þolmörk jarðar og enginn fer varhluta af áhrifum loftslagsbreytinga á samfélög og náttúru um allan heim. Ísland er aðili að Parísarsamningnum, loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna, sem kveður á um að ríki heims haldi hlýnun jarðar innan við 2°C frá iðnbyltingu og að leitast skuli við að takmarka hana við 1,5°C.
Markmið Parísarsamningsins byggja á vísindalegum niðurstöðum og taka mið af þeim alvarlegu afleiðingum sem minnsta hlýnun, hver auka komma, getur haft á lífsgæði mannkyns og vistkerfi jarðar.
Hlýnun umfram 1,5°C eykur hættuna á frekara tjóni og óafturkræfum breytingum eins og bráðnun jökla, súrnun sjávar, tapi á líffræðilegri fjölbreytni og hnignun vistkerfa.
Alþjóðasamfélagið hefur sammælst um að þessi mörk séu lykilmælikvarði í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og að atvinnulíf, samfélög og stjórnvöld þurfi að grípa tafarlaust til markvissra aðgerða til að takmarka hlýnun. Við hjá Landsvirkjun vinnum markvisst að því að ná þessum markmiðum í umhverfisstarfi okkar.



