Helga María Hjaltadóttir lauk grunnnámi í rekstrarverkfræði í vor. Helga var á deild Verkefnastoðar og hennar helstu verkefni í sumar voru uppbygging ítarlegrar handbókar (Earned Value Analysis), stuðningur við verkefnastjóra og samræming áhættuskráa.

Helga María Hjaltadóttir
Það sem helst stóð upp úr eftir sumarið var tækifærið til að fá innsýn í stór innviðaverkefni og fá að taka þátt í raunverulegum framkvæmdaverkefnum.
Bjarki Kristgeir Sigurðsson starfaði á sviði Rekstrar vatnsafls í sumar. Hann fékk það verkefni að bæta merkingar og skráningu tenginga og búnaðar milli hinnar nýju Stjórnstöðvar Landsvirkjunar og varastjórnstöðvar.

Bjarki Kristgeir Sigurðsson
Vinnan fólst bæði í mikilli handavinnu en einnig ítarlegum skoðunum og samanburði á rafnetsteikningum.
Ragnheiður Sæunn Aðalsteinsdóttir, nemi hjá Nýframkvæmdum, varði stórum hluta sumarsins í vinnubúðunum við Vaðöldu. Hennar helstu verkefni voru eftirlit með stöðu flutninga á vindmyllum í Vaðölduver, greining á vindmælingum og tilfallandi verkefni á verkstað.

Ragnheiður Sæunn Aðalsteinsdóttir
Hluti af því að fylgjast náið með stöðu flutninganna var að teikna upp ítarlega tímaíínu þeirra. Önnur verkefni voru m.a. að halda utan um vaktbækur öryggismiðstöðvarinnar, afhendingarskýrslur milli verktaka og uppfærslur til ISAVIA á stöðu vindmyllanna.
Sindri Dagur Sindrason vann við þróun á vélnámslausn á sviði þróunar vatnsafls og þá helst á deild vinnsluáætlana.

Sindri Dagur Sindrason
Sindri vann við að endurþjálfa eða fínstilla Google Flood Hub open source varnasviðslíkanið. Líkanið er gagnadrifið, svokallað LSTM tauganet, og gert til að spá fyrir um hættu á flóðum. Vatnakerfið á Íslandi er einstakt og talsverð vinna var fólgin í því að aðlaga líkanið svo tekin var ákvörðun um að setja upp Azure Machine Learning í samstarfi við tölvudeildina. Reynslan var afar góð.
Halldóra Birta Sigfúsdóttir er að klára sitt annað sumar á innkaupadeild en hún er að nema tölvunarfræði við Södertörn University í Svíþjóð.

Halldóra Birta Sigfúsdóttir
Hún vann hörðum höndum að því að hanna og setja upp nýjan innkaupavef fyrir starfsfólk Landsvirkjunar.
Góð hönnun sparar tíma og Halldóra lagði áherslu á skýrt og notendavænt kerfi.
Róbert Aron Richter fékkst við ýmis spennandi verkefni á deild rekstrarþróunar en þetta var hans þriðja sumar hjá Landsvirkjun.

Róbert Aron Richter
Hans helsta verkefni var að vinna að verðmatslíkani Landsvirkjunar. Líkanið hjálpar til við að meta hvaða verkefni skapa mest virði og getur nýst stjórnendum sem tæki við stefnumótun.
Mia Alexandra Schwartz er bandarískur nemi frá University of Minnesota sem hefur náð að læra talsverða íslensku á stuttum tíma.

Mia Alexandra Schwartz
Mia sinnti auðlindaeftirliti á Mývatnssvæðinu en það felur í sér aflmælingar, efnasýnatöku og grunnvatnsmælingar.
Mía er mikil áhugakona um súrar gúrkur og heldur úti Instagramsíðunni @surarmiur.