Tuttugu ára fjármögnun Kárahnjúkavirkjunar
Skuldabréfið var gefið út árið 2006 undir EMTN skuldabréfaramma félagsins og var að fjárhæð 150 milljónir evra, eða jafnvirði um 21 milljarður króna. Lánið var tekið til að fjármagna framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun og var lánstími þess 20 ár. Landsvirkjun hefur greitt ríkissjóði árlegt ríkisábyrgðargjald vegna ábyrgðarinnar.





