190 tonna spennir kominn í Vaðölduver

10.07.2026Vaðölduver

Spennir fyrir safnstöð Vaðölduvers er kominn á framkvæmdasvæðið eftir sjóflutning frá Portúgal til Íslands og landflutning frá Þorlákshöfn.

Spennirinn hífður í land í Þorlákshöfn.
Spennirinn hífður í land í Þorlákshöfn.

Viðamiklir þungaflutningar

Flutningar í Vaðölduver

Spennir fyrir safnstöð Vaðölduvers er kominn á framkvæmdasvæðið eftir sjóflutning frá Portúgal til Íslands og landsflutning frá Þorlákshöfn. Spennirinn er þyngsti farmur sem fluttur hefur verið um íslenska vegi, hann vegur 190 tonn og ýmsir fylgihlutir hans 40 tonn til viðbótar. Heildarþyngd spennis, alls búnaðar og sérstaks flutningabíls nam 308 tonnum. Flutningarnir gengu snurðulaust.

Flutningaskipið EENDRACHT kom til hafnar í Þorlákshöfn miðvikudaginn 8. júlí. Sama dag var fylgibúnaði spennisins landað, alls um 40 tonnum, en þar á meðal voru kælar, viftur, gegnumtök, pípur og annar nauðsynlegur búnaður.

Að lokinni löndun lá jafnframt betur fyrir hversu mikið geymslu- og vinnupláss þarf á framkvæmdasvæðinu við safnstöðina í Vaðölduveri. Spennirinn sjálfur var síðan hífður í land og kominn frá borði um hádegi daginn eftir. Landflutningur spennisins hófst frá Þorlákshöfn eftir miðnætti aðfaranótt föstudagsins 10. júlí.

ET þungaflutningar sáu um flutninginn og kom spennirinn á framkvæmdasvæðið í Vaðölduveri um klukkan 9 sama morgun. Flutningurinn gekk samkvæmt áætlun og var afrakstur umfangsmikils undirbúnings Landsvirkjunar í samstarfi við Vegagerðina, ET þungaflutninga, lögreglu og fleiri samstarfsaðila.

Flutningur yfir Þjórsárbrú gekk vel

Sérstakt samráð var haft við Vegagerðina vegna flutnings yfir brýr á leiðinni. Fulltrúar Vegagerðarinnar fylgdu flutningnum þar til brúin yfir Þjórsá hafði verið þveruð, skömmu eftir klukkan sex um morguninn.

Spennirinn var fluttur á sérútbúnum fjölöxla þungaflutningavagni sem er hannaður til að bera mjög þungan farm og dreifa álaginu á marga öxla sem var lykilatriði í undirbúningi flutningsins, ekki síst við akstur yfir brýr. Áður en flutningurinn hófst hafði leiðin verið yfirfarin með tilliti til burðarþols, beygjuradíusa og annarra aðstæðna á vegum.